gfd gjfdiaj ga
gjdfi ajgiad fjgidfajgl
jg dfiaogjiadjgadfil
Í Vestmannaeyjum eru tveir grunnskólar undir nafni Grunnskóla Vestmannaeyja (GRV).

Annarsvegar er það GRV - Hamarsskóli og GRV - Barnaskóli Vestmannaeyja.
GRV-Hamarsskóli er með nemendur í 1. – 4. bekk og skólastjóri er Anna Rós Hallgrímsdóttir.
GRV-Barnaskóli Vestmannaeyja er fyrir nemendur í 5. – 10. bekk og skólastjóri er Einar Gunnarsson.
Einkunnarorð GRV eru; Gleði – Öryggi – Vinátta.
gfd gjfdiaj ga
gjdfi ajgiad fjgidfajgl
jg dfiaogjiadjgadfil
Innritun í skóla
Innritun barna í 1. bekk hefst í upphafi árs fyrir skólagöngu um haustið. Foreldrar/forráðamenn innrita barnið sitt í gegnum nemendagrunn.
Foreldrar barna sem eru að hefja nám í grunnskóla bera ábyrgð á að innrita börn sín á réttum tíma.
Foreldrar sem geta ekki sótt um innritun rafrænt geta fengið aðstoð þjónustufulltrúa á skrifstofu Fjölskyldu- og fræðslusviðs, Kirkjuvegi 23.
Ef barn með lögheimili í Vestmannaeyjum sækir um skólagöngu utan lögheimilissveitarfélags þarf að tilkynna það sérstaklega til skólaskrifstofu í gegnum netfangið, helgasigrun@vestmannaeyjar.is.
Umsóknir um skólavist utan lögheimilis
Umsóknir um skólavist utan lögheimilissveitarfélags fara einnig í gegnum nemendagrunn. Þær eru afgreiddar á grundvelli reglna um innritun og umsóknir í grunnskóla og viðmiðunarreglna Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ef barn með lögheimili í Vestmannaeyjum sækir um skólagöngu utan lögheimilissveitarfélags þarf að tilkynna það sérstaklega til skólaskrifstofu í gegnum netfangið helgasigrun@vestmannaeyjar.is.
Frístund er staðsett í GRV-Hamarsskóla. Þar er dagskrá fyrir börn í 1. – 4. bekk frá því að skóla lýkur og til kl. 16.30. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Frístundar. Sótt er um vistun í frístund inn á íbúagátt Vestmannaeyjabæjar