20. mars 2024

Röddin - Upplestrarkeppni

11 nemendur í 7. bekk kepptu um að vera fulltrúar GRV á lokahátíð Raddarinnar-upplestrarkeppni.

Röddin-upplestrarkeppni í 7. bekk hófst á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember sl. með ræktunarhlutanum en það er mikilvægast hluti keppninnar. Þar er höfuðáhersla á bekkjarstarfið og að allir nemendur njóti góðs af. Í lok ræktunartímabils eru haldnar bekkjarkeppnir og valdir fulltrúar úr bekkjunum til að keppa í skólakeppninni.

Skólakeppni Raddarinnar-upplestrarkeppni var síðan haldin þriðjudaginn 19. mars í sal Tónlistarskólans. 11 nemendur kepptu um að vera fulltrúar GRV á lokahátíð Raddarinnar-upplestrarkeppni sem verður haldin á Hellu 30. apríl n.k..

Áður en fyrri umferð keppninnar hófst flutti Einar Igarashi lagið Alla Turca eftir Mozart á píanó.

Í fyrri umferð lásu keppendur svipmyndir úr sögunni Kennarinn sem hvarf eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur en í seinni umferð ljóð eftir Jón Jónsson úr Vör. Keppendur stóðu sig allir með stakri prýði og var hlutverk dómnefndar að vanda erfitt en hana skipuðu Drífa Gunnarsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir og Kári Bjarnason.

Í 1.-3. sæti eftir stafrófsröð voru Erla Hrönn Unnarsdóttir, Lena María Magnúsdóttir og Tómas Ingi Guðjónsson. Þessir nemendur verða fulltrúar GRV á lokahátíðinni. Egill Jón Hafþórsson var í 4. sæti og hleypur í skarðið ef forföll verða.

  • Sigurvegarar
  • Hopmynd_vidurkenning
  • Hopmynd.betri