3. maí 2024

Lena María hreppti fyrsta sætið í upplestrarkeppninni Röddinni

Lokahátíð Raddarinnar var haldin í Safnaðarheimilinu við Dynskála á Hellu þann 30. apríl s.l.

Grunnskólinn á Hellu hélt utan um undirbúning og framkvæmd lokakeppninnar í ár en keppendurnir komu frá Grunnskóla Vestmannaeyja, Víkurskóla, Kirkjubæjarskóla, Hvolsskóla, Grunnskólanum á Hellu og Laugalandi. Fyrir hönd GRV kepptu Erla Hrönn Unnarsdóttir, Lena María Magnúsdóttir og Tómas Ingi Guðjónsson og stóðu þau sig með mikilli prýði.

Lena María hreppti fyrsta sætið og óskum við henni hjartanlega til hamingju.

 

  • Fulltruar.grv
  • Lena.1-002-