Fyrir liggur 6 mánaða rekstraryfirlit Vestmannaeyjahafnar. Tekjur hafnarinnar fyrst 6 mánuði ársins voru 334 milljónir og rekstrarniðurstaðan um 71 milljón þegar búið er að taka tillit til afskrifta. Áætlun ársins 2022 gerði ráð fyrir að tekjur á tímabilinu yrði rúmar 234 milljónir og jákvæðri rekstrarniðurstöðu upp á tæpar 14 milljónir. Góð vertíð og tíðar komur skemmtiferðaskipa vega þyngst í auknum tekjum hafnarinnar umfram það sem áætlun gerði ráð fyrir.
Niðurstaða Ráðið þakkar upplýsingarnar.
2. 200910001 - Stórskipakantur, Athuganir og rannsóknir
Hafnarstjóri fór yfir fyrstu niðurstöður á vinnu Eflu fyrir Vestmannaeyjahöfn.
Þær sýna að núverandi gámasvæði og svæði fyrir geymslu á farmi, lengd viðlegubakka og bryggjudýpi, dýpt innsiglingar, og vídd snúningsrými hafnarinnar er aðal áhyggjuefni flestra hagsmunaaðila sem rætt var við.
Niðurstaða Ráðið þakkar kynninguna og telur vinnuna hjá Eflu fara vel af stað.