Haldinn í fundarsal Rauðagerðis, 20.07.2021 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Helga Jóhanna Harðardóttir formaður, Hrefna Jónsdóttir varaformaður, Gísli Stefánsson aðalmaður, Jón Pétursson framkvstj.sviðs, Silja Rós Guðjónsdóttir starfsmaður sviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs
Gústaf Adolf Gústafsson mætti í stað Hafdísar Ástþórsdóttur og Sigurjón Viðarsson mætti í stað Estherar Bergsdóttur
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 200704148 - Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Niðurstaða Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skv. viðauka IV við bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjar nr. 991/2020.
2. 200707220 - Barnaverndarvaktir á Þjóðhátíð í Eyjum
Bakvaktir barnaverndarnefndar á Þjóðhátíð 2021
Niðurstaða Barnaverndarbakvaktir verða, líkt og síðastliðin ár, starfræktar frá fimmtudagskvöldi til mánudagskvölds. Starfsmenn Fjölskyldu- og fræðslusviðs munu sinna bakvöktunum. Jafnframt samþykkir ráðið að semja við aðila um greiðslur fyrir að vera til taks til að veita börnum móttöku í bráðatilvikum ef þörf krefur.
Fjölskyldu- og tómstundaráð beinir því til foreldra og forráðamanna að börn undir 18 ára aldri eru ólögráða og á ábyrgð foreldra. Þetta gildir einnig um gestkomandi börn, þau þurfa að vera á ábyrgð fullorðinna einstaklinga.