|
Fundinn sátu: Arna Huld Sigurðardóttir formaður, Aníta Jóhannsdóttir aðalmaður, Ingólfur Jóhannesson aðalmaður, Ragnheiður Perla Hjaltadóttir aðalmaður, Rannveig Ísfjörð 2. varamaður, Jón Pétursson framkvstj.sviðs, Drífa Gunnarsdóttir starfsmaður sviðs, Anna Rós Hallgrímsdóttir starfsmaður sviðs, Bjarney Magnúsdóttir starfsmaður sviðs, Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir starfsmaður sviðs, Helga Björk Ólafsdóttir , Kolbrún Matthíasdóttir . |
|
Fundargerð ritaði: Drífa Gunnarsdóttir, fræðslufulltrúi |
|
Fræðsluráð fagnar því að GRV hafi fengið veglegan styrk úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytis fyrir þróunarverkefnið Kveikjum neistann. |
|
|
Almenn erindi |
1. 201910156 - Hamarskóli - nýbygging |
Staðan á undirbúningi við nýbyggingu Hamarsskóla. Umhverfis- og framkvæmdasvið vinnur enn að þarfagreiningu og undirbúningsvinnu áður en nýbyggingin fer í hönnunarferil. Stefnt er að því að ljúka forvinnunni í haust og í framhaldinu fer verkefnið í hönnunarferil. Í fjárhagsáætlun ársins 2021 er gert ráð fyrir 20 milljónum í hönnunarvinnu. |
Niðurstaða Ráðið þakkar kynninguna og óskar eftir því að framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs mæti á næsta fund ráðsins og leggi fram nýja tímalínu framkvæmda. |
|
|
|
2. 201611104 - Skólalóðir |
Staðan á endurbótum skólalóða GRV og Kirkjugerðis. Á næstu vikum verður haldið áfram með endurbætur á skólalóðinni við Hamarsskóla. Þar verður komið upp m.a. ærslabelgi, stölluðu útikennslusvæði og bættu undirlagi. Á austurlóð leikskólans Kirkjugerðis verður svæðið drenað og undirlag lagað eins og kostur er. Í ár er gert ráð fyrir fjármagni upp á 20 milljónum til umræddra framkvæmda. Þegar er búið að kaupa töluvert af leiktækjum og undirlagi sem bíður uppsetningar. |
Niðurstaða Ráðið þakkar kynninguna og um leið beinir því til aðila að framkvæmdir við skólalóðirnar séu unnar í sátt og samlyndi við starfsemina og skólastjórnendur. |
|
|
|
3. 201304035 - Skóladagatal. Samræmd dagatöl skóla og frístundavers. |
Sameiginlegt skóladagatal leik-, grunnskóla og frístundavers fyrir skólaárið 2021-2022 lagt fram til staðfestingar. Kennsludagar í grunnskólanum eru 180 og verður skólasetning 24. ágúst. Starfsdagar eru 13, þar af eru 9 utan starfstíma skóla. Vetrarleyfisdagar verða 18.-19. október á haustönn og 17.-18. febrúar á vorönn. Starfsdagar leikskólanna verða 23. ágúst, 15. október, 30. desember, 21. febrúar og 22. apríl. Skert þjónusta verður dagana 27.-29. desember þar sem ekki verður um skipulagt leikskólastarf að ræða heldur vistun fyrir þá sem þurfa. Foreldrar sækja um vistun þá daga en leikskólagjöld lækka hjá þeim sem ekki nýta þá. Frístundaver opnar 16. ágúst en lokað verður 15. október, 21. febrúar, 2. mars og 22. apríl vegna starfsdaga. Heilsdagsvistun verður í boði á starfsdögum skóla að hausti, á vetrarleyfisdögum, foreldraviðtalsdögum og í jólaleyfi skóla auk starfsdaga skóla í janúar og júní. |
Niðurstaða Fræðsluráð samþykkir fyrirlagt skóladagatal. |
|
|
|
4. 201910096 - Þróunarsjóður leik- og grunnskóla |
Umsóknir fyrir þrettán verkefni bárust í Þróunarsjóð leik- og grunnskóla en umsóknarfrestur var til 28. febrúar sl. |
Niðurstaða Fræðsluráð hefur farið yfir og afgreitt umsóknirnar og fá átta verkefni styrk úr sjóðum í ár. Heildarupphæð sem veitt verður úr sjóðnum er kr. 3.043.600 Umsóknum verður svarað áður en kemur að afhendingu styrkjanna en þeir verða afhentir við sérstaka athöfn sem á eftir að dagsetja.
|
|
|
|
5. 201911003 - Hvatningarverðlaun leik- og grunnskóla |
Hvatningarverðlaun fræðsluráðs voru veitt í fyrsta skipti árið 2020 við hátíðlega athöfn í Einarsstofu þann 17. júní og hlutu þrjú verkefni verðlaun. Markmið með hvatningarverðlaunum er að vekja athygli á því sem vel er gert í fræðslustarfi. |
Niðurstaða Veiting hvatningarverðlaunanna á síðastliðnu ári gafst vel og telur fræðsluráð að markmiðinu með verðlaununum hafi verið náð. Ráðið samþykkir að veita hvatningarverðlaun árlega með því fyrirkomulagi sem samþykkt var á 324. fundi ráðins 27. nóvember 2019 og felur fræðslufulltrúa að vinna eftir þeim tillögum og undirbúa verðlaunin. |
|
|
|
6. 201411027 - Framtíðarsýn og áherslur í menntamálum. |
Faghópur sem stýrir vinnu við gerð nýrrar framtíðarsýnar hefur fundað þrisvar og undirbúið vinnu sem mun fara fram í leikskólum og grunnskóla þegar það verður hægt en fjöldatakmarkanir vegna COVID-19 setja þar strik í reikninginn. Skila á drögum í september nk. og endanlegu eintaki í janúar en óskað er eftir fresti fram í nóvember til að skila drögum en ennþá er stefnt að skilum á endanlegu eintaki í janúar 2022. |
Niðurstaða Ráðið samþykkir að fresta skilum á drögum nýrrar framtíðarsýnar fram í nóvember 2021. |
|
|
|
7. 202103191 - Rekstrarkostnaður á nemanda eftir stærð grunnskóla |
Umræður um yfirlitsskjal SÍS sem sýnir rekstrarkostnað á hvern grunnskólanemanda eftir stærð skóla árið 2019. GRV er í flokki með skólum sem telja 501-600 nemendur en alls eru 19 skólar í þeim flokki. GRV er með 1.615.000 í kostnað á nemenda en meðaltalið fyrir þessa stærð skóla er 1.432.000 og meðaltalið fyrir alla skóla er 1.618.000 Þessar tölur eru án innri leigu og skólaaksturs og hafa ber í huga að alls konar breytur hafa áhrif á lykiltölur eins og þessar. |
Niðurstaða Fræðsluráð þakkar yfirferðina á umræddum lykiltölum. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:19 |