|
Almenn erindi |
1. 202006242 - Fjárhagsáætlun 2021 |
Bæjarstjóri lagði fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 til kynningar fyrir seinni umræðu í bæjarstjórn. Fyrir liggja þrjár tillögur frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins sem óskað hefur verið eftir að teknar verði fyrir á fundi bæjarstjórnar n.k. fimmtudag. |
Niðurstaða Bæjarráð þakkar kynninguna og vísar fjárhagsáætluninni til seinni umræðu í bæjarstjórn. |
|
|
|
2. 202010069 - Þriggja ára fjárhagsáætlun 2022-2024 |
Bæjarstjóri lagði fram þriggja ára fjárhagsáætlun 2022-2024 til kynningar fyrir seinni umræðu í bæjarstjórn. |
Niðurstaða Bæjarráð vísar þriggja ára fjárhagsáætlun 2022-2024 til seinni umræðu í bæjarstjórn. |
|
|
|
3. 201212068 - Umræða um samgöngumál |
Fyrir bæjarráði lágu upplýsingar um breytingar á gjaldskrá Herjólfs ohf. sem kynntar voru bæjarfulltrúum á upplýsingafundi með stjórn félagsins. Undanfarna mánuði hafa staðið yfir samningaviðræður milli samninganefndar Herjólfs og Vegagerðarinnar um fjármál félagsins og samning um rekstur Herjólfs til næstu ára. Rekstur og fjármál félagsins hefur gengið erfiðlega á þessu ári og ein meginforsenda samningaviðræðnanna var að tryggja fjárhagslegt hæfi félagsins, en jafnframt að veita góða þjónustu og tryggja ferðatíðni ferjunnar. Grípa þarf til fjölþættra aðgerða til þess að svo geti orðið. Hækkun gjaldskrár er ein þeirra.
Bæjarstjóri greindi frá erindi til samgönguráðherra þar sem þess er farið á leit að ráðherra beiti sér fyrir nauðsynlegu fjármagni úr ríkissjóði til þess að halda uppi reglulegum flugsamgöngum milli lands og Eyja þar til flugfélögin sjá sér fært að hefja áætlunarflug á markaðslegum forsendum. Jafnframt greindi bæjarstjóri frá fundi sem hún átti með ráðherranum þann 30. nóvember sl., til að fylgja málinu eftir. Viðbragða ráðherra er að vænta á næstu dögum. |
Niðurstaða Bæjarráð þakkar upplýsingarnar. Í ljósi erfiðrar stöðu Herjólfs ohf. er mikilvægt að tryggja fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Hækkanir á gjaldskrá er einn liður sem grípa þarf til að tryggja áframhaldandi rekstur. Bæjarráð og bæjarstjórn hefur lagt á það þunga áherslu að ferðatíðni skerðist ekki. Hækkanir á gjaldskrá eru neyðarúrræði sem aldrei er léttvæg ákvörðun en í ljósi stöðunnar sýnir bæjarráð því skilning að hækka þurfi fargjöld. |
|
|
|
4. 202003036 - Viðbrögð vegna veiruógnunar |
Viðspyrnusjóður
Framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs kynnti drög að fyrirkomulagi og reglum um sérstakan viðspyrnusjóð fyrir fyrirtæki vegna Covid-19.
Samkvæmt drögunum er gert ráð fyrir að settur verði á laggirnar viðspyrnusjóður fyrir fyrirtæki, með áherslu á fyrirtæki í ferðaþjónustu, með heilsársstarfsemi, sem nýtur framlaga frá Vestmannaeyjabæ um allt að 5 m.kr. á árinu 2020.
Sjóðurinn er stofnaður til að bregðast við þeim óvæntu og sérstöku aðstæðum sem skapast hafa vegna heimsfaraldurs Covid-19 veirunnar. Gríðarlegt tekjufall hefur orðið hjá mörgum fyrirtækjum, sérstaklega í ferðaþjónustu og við þeim aðstæðum er verið að bregðast með afgerandi hætti.
Gert er ráð fyrir að sjóðurinn verði fjármagnaður með þegar ákveðnum fjárheimildum á fjárhagsáætlun 2020 og því þarf ekki að koma til nýtt fjármagn.
|
Niðurstaða Bæjarráð samþykkir að settur verði á laggirnar viðspyrnusjóður á þeim grunni sem kynntur hefur verið og samþykkir drög að fyrirkomulagi og reglum sjóðsins.
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að fylgja málinu eftir og auglýsa sjóðinn á vef Vestmannaeyjabæjar. Úthlutað verður úr sjóðnum fyrir áramót. |
|
|
|
5. 202011081 - Fulltrúar landshlutasamtaka í stafrænt ráð sveitarfélaga |
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hefur óskað eftir tilnefningu fulltrúa Vestmannaeyjabæjar í sérstakan faghóp um stafræna framþróun og samhæfða vinnu sveitarfélaga á Suðurlandi. Faghópurinn er skipaður fulltrúum sveitarfélaganna 15 sem eiga aðild að samtökunum. |
Niðurstaða Bæjarráð tilnefnir Helgu Kristínu Kolbeins, bæjarfulltrúa, í umræddan faghóp Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga um stafræna framþróun. |
Erindi til landshlutasamtaka um þátttöku í stafrænu ráði sveitarfélaga 060820.pdf |
Erindisbréf fyrir stafrænan faghóp SASS 11 09 2020.pdf |
|
|
|
6. 202011048 - Sérstakur fjárstuðningur til ÍBV íþróttafélags vegna COVID-19 |
Bæjarráð tók fyrir erindi formanns og framkvæmdastjóra ÍBV-íþróttafélags um viðbótarfjárveitingu frá Vestmannaeyjabæ vegna tekjufalls félagsins af völdum Covid-19 sem nemur tugum milljóna króna. Um er að ræða beiðni um 20 m.kr. fjárstyrk fyrir árið 2020. Vegna samkomutakmarkana stjórnvalda hefur ÍBV orðið af bróðurparti tekna sinna á þessu ári. Félagið reiðir sig m.a. á tekjur af Þjóðhátíð og öðrum viðburðum, en flestir þessara viðburða hafa fallið niður. Ráðist hefur verið í hagræðingaraðgerðir, en ljóst er að ef halda úti óbreyttu íþróttastarfi barna og ungmenna þarf að koma til viðbótarfjármagn. Öðrum kosti gæti komið til þess að félagið neyðist til að hækka æfingagjöld umtalsvert. |
Niðurstaða Bæjarráð samþykkir að veita ÍBV-íþróttafélagi 20 m.kr. fjárstyrk á árinu 2020 vegna tekjufalls félagsins af áhrifum hertra samkomutakmarkana. Styrkurinn er ætlaður til barna og unglingastarfs og er skilyrtur við að æfingagjöld hækki ekki á árinu 2021. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs að gera samning við ÍBV um fjárstyrkinn og skilyrði fyrir honum. Bæjarráð felur jafnframt fjármálastjóra að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun 2020 þar sem gert er ráð fyrir þessari fjárveitingu. |
ÍBV - beiðni um viðbótarfjárveitingu vegna tekjufalls af völdum Covid19.pdf |
|
|
|
7. 202011040 - Erindi frá GV um framtíðaráform klúbbsins |
Fyrir bæjarráði lá erindi Golfklúbbs Vestmannaeyja dags. 15. nóvember sl., þar sem óskað er eftir viðbótarfjárveitingu frá Vestmannaeyjabæ að upphæð 10 m.kr. fyrir árið 2021, til þess að ráðast í lagfæringar á aðstöðu kylfinga, svo sem búningsklefa, salerni og bætta aðstöðu fyrir tæki og í ljósi þess að klúbburinn heldur Íslandsmótið í höggleik 2022.
Beiðni þessi um aukafjárveitingu til golfklúbbsins er til viðbótar þeim rúmum 27 m.kr. sem óskað hefur verið eftir í fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar til GV á næsta ári.
|
Niðurstaða Bæjarráð hefur fjallað um erindi GV með hliðsjón af undirbúningi fjárhagsáætlunar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2021. Bæjarráð telur ekki hægt að koma að fullu til móts við umrædda beiðni golfklúbbsins, en leggur til að bæjarstjórn veiti aukafjárstyrk í fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 að upphæð 5 m.kr. til þessara framkvæmda að því gefnu að ráðist verði í þær. |
aukafjarveiting_gv-vmnóv2020b.pdf |
|
|
|
8. 202009015 - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga |
Fram hefur komið að Reykjavíkurborg hafi krafið Jöfnunarsjóð sveitarfélaga um 8,7 milljarða króna fyrir meint vangoldin framlög úr sjóðnum og ætli að halda þeirri kröfu til streitu, þrátt fyrir að ríkið hafi hafnað henni. Ljóst er að muni krafan ná fram að ganga munu sveitarfélögin í landinu þurfa að greiða fyrir kröfuna í formi skertra framlaga úr Jöfnunarsjóði til þeirra. Það hefur átt sér stað um aðrar kröfur sem lent hafa á sjóðnum. Mörg sveitarfélög treysta að miklu leyti á framlög Jöfnunarsjóðs til að sinna þeim fjölmörgu verkefnum sem þeim eru falin og því ljóst að skerðing á framlögum mun gera mörgum sveitarfélögum ómögulegt að sinna þessum verkefnum. Það getur haft þær afleiðingar að þjónusta við íbúana skerðist verulega frá því sem nú er.
Flest sveitarfélög landsins takast nú á við mjög erfiða fjárhagsstöðu á árinu 2020 og vandasamt er að áætla fyrir um tekjur og gjöld á næsta ári. Skert framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga mundi hafa veruleg áhrif á fjárhagsstöðu sveitarfélaga.
|
Niðurstaða Bæjarráð tekur undir með byggðarráði sveitarfélagsins Skagafjarðar og deilir áhyggjum sveitarfélagsins af kröfu Reykjavíkurborgar um 8,7 milljarða króna á Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og skorar á Reykjavíkurborg að draga kröfuna til baka. Nær er að leita annarra leiða gagnvart ríkisvaldinu til að ná fram þeirri leiðréttingu sem borgin telur sig eiga rétt á. Reykjavíkurborg má vera það ljóst að með því að sækja kröfuna í gegnum Jöfnunarsjóð munu framlög til annarra sveitarfélaga skerðast sem því nemur, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir sveitarfélögin og íbúa þeirra. |
|
|
|
9. 201904142 - Umsagnir frá Alþingi - bæjarráð |
Þann 27. nóvember sl. sendi nefndarsvið Alþingis til umsagnar frumvarp til laga um opinberan stuðning við nýsköpun, 322. mál.
Þess er óskað að umsögn berist ekki síðar en 11. desember nk.
Vestmannaeyjabær hafði sent umsögn á fyrri stigum málsins þar sem tekið er undir meginmarkmið frumvarpsins, en lagt til að nánari útskýringar yrðu gerðar á einstökum þáttum, eins og framlögum til nýsköpunar á landsbyggðinni og fyrirkomulagi stafrænna smiðja.
Lögð voru fram drög að umsögn sem ítrekar fyrri umsögn Vestmannaeyjabæjar og lagt til að auki, að frumvarpið fjalli ítarlegar um nýsköpun á landsbyggðinni og framtíð stafrænna smiðja.
|
Niðurstaða Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að senda hana í gegnum samráðsgátt stjórnvalda. |
Umsögn 2 um frumvarp um frumvarp til laga um opinberan stuðning við nýsköpun.pdf |
|
|
|
10. 201904018 - Fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga |
Lagðar voru fram til upplýsinga fundargerðir aðalfundar frá 30. október og 60. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem fram fór 19. nóvember sl. Á aðalfundi tók Njáll Ragnarsson sæti í varastjórn samtakanna.
|
Fundargerð aðalfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2020.pdf |
stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga -60.pdf |
|
|
|
11. 201907118 - Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga og SASS |
Lögð var fram til upplýsinga fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 891, vegna fundar sem haldinn var 20. nóvember sl. Jafnframt var lögð fram 564. fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga vegna fundar sem haldinn var 6. nóvember sl. |
Fundargerð stjórnar Sambandsins nr. 891.pdf |
564.-fundur-stj.-SASS.pdf |
|
|
|
12. 201909118 - Húsnæðismál Vestmannaeyjabæjar |
Bæjarráð tók fyrir tilboð um kaup á hluta Vestmannaeyjabæjar á 2. og 3. hæðum eignarinnar að Strandvegi 50 (Hvíta húsinu). Húsið hefur lengi verið til sölu og fáir sýnt því áhuga. Vestmannaeyjabær á að fullu 1. hæð hússins þar sem nú er rekin félagsmiðstöð fyrir unglinga. Að auki á Vestmannaeyjabær 32% af 2. og 3. hæðum hússins á móti Visku sem á hin 68%. Viska hefur áhuga á að eignast 2. og 3. hæðina að fullu og hafa gert Vestmannaeyjabæ tilboð um kaupverð á eignarhluta bæjarins. Tveir fasteignasalar hafa verðmetið eignina og er tilboð Visku í samræmi við verðmatið.
Verði af viðskiptunum munu þau engin áhrif hafa á húsleigusamning við Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja um efri hæðir Strandvegs 50. Leigusamningurinn mun áfram gilda til 30. september 2022.
|
Niðurstaða Bæjarráð felur bæjarstjóra og framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ganga frá viðskiptum á grundvelli þess sem kynnt var bæjarráði. |
|
|
|