1. 202011044 - Áshamar. Umsókn um lóð fyrir dreifistöð rafmagns.
Lögð fram umsókn frá HS-veitum. Sigurður Sveinsson fh. HS-veitna sækir um lóð undir dreifistöð rafmagns í Áshamarshverfi.
Niðurstaða Afgreiðslu frestað og skipulagsfulltrúa falið að senda erindi í grendarkynningu skv. skipulagslögum.
2. 202010002 - Áshamar 40. Umsókn um byggingarleyfi - viðbygging og bílgeymsla
Erindi lagt fram að lokinni grenndarkynningu. Ragnar Þór Baldvinsson sækir um leyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhús og byggingu bílgeymslu við lóðarmörk til suðurs í samræmi við innsend gögn. Eitt bréf barst ráðinu.
Niðurstaða Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir erindið með þeim fyrirvara að bílskúr sé færður 1 m frá lóðamörkum sem liggja að lóð að Áshamri 42.
Ráðið felur Byggingarfulltrúa framgang erindis sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012
4. 202011050 - Erindi frá Björgunarfélagi Vestmannaeyja
Erindi barst frá stjórn Björgunarfélags Vestmannaeyja um staðsetningu minnismerkis Þórs.
Niðurstaða Ekki er fyrirhugað að flytja minnismerkið á Vigartorg, enda samræmist það ekki hönnun á svæðinu. Minnismerkið verður fært innan svæðisins samkvæmt gildandi skipulagi, sem samþykkt var 2013. Skipulagsfulltrúa falið að svara bréfritara.