Leikhópurinn Lotta fagnar tuttugu ára afmæli í ár og setur af því tilefni upp söngleikinn Litaland um allt land í sumar! Eins og alltaf býður hópurinn upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem saman koma söngur, gleði, dans og húmor fyrir unga sem aldna. Sýningaplan sumarsins má finna á www.leikhopurinnlotta.is. Sýningin er um klukkustund að lengd og fer fram utandyra. Við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri, taka með sér nesti, teppi og góðan ævintýraanda. Einnig er gott að hafa símann vel hlaðinn, því að sýningu lokinni gefst áhorfendum kostur á að taka mynd með sinni uppáhalds ævintýrapersónu. Miðaverð er 4.900 kr. (frítt fyrir tveggja ára og yngri) og hægt er að kaupa miða á staðnum og á tix.is. Viðskiptavinir í Stofni hjá Sjóvá fá 2 miða á verði 1. Hlökkum til að sjá ykkur! ________________________________________ Um sýninguna Litaland segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum – eða Gulverjum, Rauðingjum og Bláungum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil, enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig. Fljótlega dregur þó til tíðinda. Bláungar neyðast til að leita skjóls hjá Gulverjum í Gulheimum, þar sem heimur þeirra bláu er að hverfa og þeir standa eftir án samastaðar. Sú viðkvæma staða leiðir til spennandi og ófyrirsjáanlegrar framvindu. Í Rauðheimum virðist allt á yfirborðinu vera með felldu. Þar undirbúa Rauðingjar komu nýs litar sem væntanlegur er í hópinn. Rjóð, móðir hans, er þó treg til að segja frá því hver faðirinn er… Hver skyldi vera ástæðan fyrir því? ________________________________________ Aðstandendur Leikstjórn: Sigsteinn Sigurbergsson & Þórunn Lárusdóttir Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen Hreyfingar: Þórunn Lárusdóttir, Sigsteinn Sigurbergsson, Berglind Ýr Karlsdóttir & Leikhópur Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson & Sumarliði V Snæland Ingimarsson Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Helgi Reynir Jónsson Höfundar lagatexta: Sævar Sigurgeirsson & Baldur Ragnarsson Hljóðblöndun: Þórður Gunnar Þorvaldsson Búningahönnun: Aldís Gyða Davíðsdóttir, Rósa Ásgeirsdóttir, Ídris R. Berman Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson Leikmunir: Leikhópurinn Andrea Ösp Karlsdóttir - Bál, Litli Litur, Hafdís Anna Bergljót Thorarensen - Glódís, Ástrós, Marín Rósa Ásgeirsdóttir - Rjóð, Aldin, Særún Sumarliði V Snæland Ingimarsson - Geisli, Blær, Hjörtur þjónn Stefán Benedikt Vilhelmsson - Afi gamli, Rósmundur
LITALAND - Leikhópurinn Lotta í Vestmannaeyjum
Dags
30. júní
Kl.
17:00 - 18:00
Staðsetning
Stakkagerðistún
Leikhópurinn Lotta sýnir fjölskyldusöngleikinn Litaland á Stakkagerðistúni í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 30.júní klukkan 17:00
