15. desember 2020

Yfirfélagsráðgjafi óskast – afleysing

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir yfirfélagsráðgjafa til starfa hjá fjölskyldu- og fræðslusviði Vestmannaeyjabæjar. Um er að ræða afleysing í 100% stöðu í eitt ár. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfið er á sviði félagsþjónustu- og barnaverndar.

Helstu verkefni yfirfélagsráðgjafa

· umsjón og ábyrgð á fagsviði málaflokks félagsþjónustu og barnaverndar í samstarfi og samráði við framkvæmdastjóra sviðs

· með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf í tengslum við félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, málefni barna og ungmenna, húsnæðismál, vímuvarnir o.fl.

· með barnavernd er átt við allir þeir þættir sem heyra undir barnavendarlög

· vinnur með verkefnastjórnun, áætlanagerð, ársskýrslur, gæðamat og nýsköpun innan málaflokkanna og heldur utan um teymisvinnu og aðra samvinnu félagsþjónustu og barnaverndar við tengslastofnanir innan sem utan sveitarfélagsins

· yfirfélagsráðgjafi situr fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs varðandi þau verkefni sem heyra undir starfssvið hans

Menntun og hæfniskröfur

· Starfsréttindi sem félagsráðgjafi

· Reynsla af barnverndar-, framfærslumálum og félagslegri ráðgjöf

· Reynsla af stjórnun

· Sjálfstæði í vinnubrögðum

· Færni í samskiptum

· Hæfni í þverfaglegu samstarfi

Upplýsingar veitir Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar (jonp@vestmannaeyjar.is) í síma 488 2000.

Umsóknarfrestur er til og með 18. desember 2020

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið jonp@vestmannaeyjar.is . Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá um fyrri störf og menntun ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um óháð kyni.