1. júlí 2020

Vestmannaeyjabær kaupir hluta af húsnæði Íslandsbanka.

Skrifað hefur verið undir samning um kaup Vestmannaeyjabæjar á 85% eignarhlut í húsi Íslandsbanka að Kirkjuvegi 23. 

Kaupverðið er 85 milljónir króna. Til stendur að flytja starfsemi fjölskyldu- og fræðslusvið Vestmannaeyjabæjar í húsnæðið.

Á myndinni eru Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Guðjón Hjörleifsson fasteignasali sem sá um söluna fyrir hönd Íslandsbanka.