7. júlí 2022

Út í sumarið

Næsti viðburður verður þriðjudaginn 12. Júlí kl 13:00

Við ætlum að hittast í dagdvölinni að Dalhrauni 3 (gengið inn vestanmegin). Við fáum heimsókn frá Gleðismiðjunni og ætlum að gera okkur glaðan dag. Gleðismiðjan sérhæfir sig í að skapa gleði hjá öllum gerðum hópa. Markmiðið er einfalt: Auka gleði og lífsgæði. Í lokin verður boðið upp á kaffi og létt spjall.

Þið megið endilega skrá ykkur við færsluna á facebook síðu Vestmannaeyjabæjar. Vonumst til að sjá sem flesta.

 

Kveðja

Thelma og Kolla