26. nóvember 2020

,,Út fyrir bókina"

Við í Grunnskóla Vestmannaeyja erum heppin að eiga frábæra kennara sem eru alltaf að finna leiðir til að bæta kennsluna og skólastarfið.

Á mánudaginn á degi íslenskrar tungu opnuðu tveir kennarar, þær Snjólaug Árnadóttir og Unnur Líf Ingadóttir heimasíðu sem heitir Út fyrir bókina. Þær hafa haldið úti facebook síðu með lifandi og skemmtilegum verkefnum sem miða að því að fara með kennsluna "út fyrir bókina". Við óskum þeim innilega til hamingju með þessa flottu heimasíðu og hvetjum ykkur til að skoða hana hér: https://utfyrirbokina.is/Í vikunni kom einnig út íslensk/pólsk barnaorðabók sem Marta Sigurjónsdóttir sérkennari var að gefa út, GRV fékk eintak að gjöf og þessi bók á eftir að nýtast vel í nýbúakennslu í skólanum og vonandi í fleiri skólum. Bæði þessi verkefni fengu styrk frá Vestmanneyjabæ, en í ár var stofnaður þróunarsjóður leik- og grunnskóla til að stuðla að þróunar -og nýsköpunarstarfi í leik- og grunnskólum. Einnig fékk verkefnið, Út fyrir bókina hvatningarverðlaun fræðsluráðs fyrr í sumar. Afrakstur þessara kennara sýnir hversu mikilvægt framtak það er að styðja við og hvetja áfram það góða starf sem fram fer í grunn- og leikskólum Vestmannaeyjabæjar.

  • Ut-f
  • Ut-fyrir-bokina