27. maí 2021

Þjónustuíbúð við Eyjahraun 1 - lengdur umsóknarfrestur til 8. júní

Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknir þjónustuíbúð fyrir eldri borgara við Eyjahraun 1.

Íbúðin er ætluð einstakling eða hjónum sem þurfa meiri stuðning og aðstoð en hægt er að veita í heimahúsi en heilsufar ekki orðið það slæmt að þörf er fyrir hjúkrunarrými. Grundvallarþættir mats fyrir þörf á þjónustuíbúð eru líkamlegt og andlegt heilsufar umsækjanda.

Íbúðin er 57,7 fermetri. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Að auki greiða leigjendur þjónustugjald sem m.a. innifelur öryggiskerfi, þjónustu yfir daginn virka daga, kvöld-og helgarinnlit, mat og aðstoð við þvotta og þrif.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 8. júní nk. Hægt er að sækja um í íbúagátt Vestmannaeyjabæjar á www.vestmannaeyjar.is Þar er farið inn á umsóknir og valið umsókn um félagslegt leiguhúsnæði almennt. Inni á eyðublaðinu er valið þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara. Einnig er hægt að koma til okkar upp á Rauðagerði, gengið inn sunnanmegin. Umsóknum þarf að fylgja læknisvottorð.

Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Anna Rúnarsdóttir í síma 488-2607 eða á netfanginu kolla@vestmannaeyjar.is.