Starfsfólk óskast í Frístund!
Frístundaverið óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda, stuðningsfulltrúa og aðstoð í eldhúsi
Starfsmenn þurfa að geta hafið störf ekki seinna en 15 .ágúst.
Frístund er starfrækt eftir hádegi alla virka skóladaga frá því að skóla lýkur og til 16:30. Einnig er opið á Frístund flesta daga þegar skólinn er lokaður frá 07:45-16:30. Starfsmenn koma til með að vinna í sumarfjörinu í sumrin.
Frístundaleiðbeinandi
Frístundaverið í Hamarsskóla óskar eftir því að ráða frístundaleiðbeinanda í 37,5 – 50% stöðu. Vinnutími er að jafnaði eftir hádegi á virkum dögum. Frá 13:00-16:00/16:30. Á sumrin vinnur starfsmaður í sumarfjörinu frá 09:00-16:00 á daginn og hækkar starfshlutfall eftir því.
Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúin í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.
Helstu verkefni
- Vinna með börnum
- Almenn umönnun barna
- Fylgd á íþróttaæfingar
- Hjálpar til að móta og framvæma dagskrá
- Aðstoð við síðdegishressingu
Stuðningsfulltrúi
Frístundaverið í Hamarsskóla óskar eftir því að ráða stuðningsfulltrúa í 37,5 – 50% stöðu. Vinnutími er að jafnaði eftir hádegi á virkum dögum. Frá 13:00-16:00/16:30. Á sumrin vinnur starfsmaður í sumarfjörinu frá 09:00-16:00 á daginn og hækkar starfshlutfall eftir því.
Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúin í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.
Helstu verkefni
- Vinna með börnum
- Almenn umönnun barna
- Stðningur við nemenda við daglegar athafnir í leik og starfi
Aðstoð í eldhúsi
Frístundaverið í Hamarsskóla óskar eftir að ráða aðstoð í eldhúsi í 37,5 % stöðu. Vinnutími er að jafnaði eftir hádegi á virkum dögum frá 13:00-16:00. Einnig eru 30 dagar yfir skólaárið þar sem er opið frá 07:45-16:30. Starfsmaður vinnur á sumrin í sumarfjörinu.
Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúin í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg
Viðkomandi starfar í eldhúsi við matarskömmtun og þrif og fær jafnaði nákvæma leiðsögn frá næsta yfirmanni.
Helstu verkefni
- Að undirbúa síðdegishressingar alla virka daga skólaársins.
- Að undirbúa morgun hressingar og matarskömmtun í hádegi þegar við á þessa 30 daga sem opið er allan daginn á frístund
- Þrif á eldhúsi og í matsal
- Vinna með börnum
Nánari starfslýsingu og upplýsingar má nálgast hjá forstöðumanni Antoni Erni Björnssyni í síma 488 2240 eða í tölvupósti anton@vestmannaeyjar.is
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey.
Umsókn sendist á anton@vestmannaeyjar.is merkt viðkomandi starfi sem sótt er um. Ekki er sótt um á sérstökum eyðublöðum en umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og rökstuðningur af hverju viðkomandi sækist eftir starfinu.
Umsækjandi þarf að hafa náð 18. ára aldri. Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun miðast við og eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey
Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk.