4. janúar 2022

Opnunartími

Opnunartími bæjarskrifstofa Vestmannaeyjabæjar er óbreyttur.

Staðan verður endurmetin reglulega enda miklar breytingar frá degi til dags. Því er beint til viðskiptavina Vestmannaeyjabæjar að notast við síma og tölvupóst eftir fremsta megni til að draga úr heimsóknum á stofnanirnar bæjarins. Sérreglur gilda um grunnskóla, tónlistaskóla, leikskóla, dagdvöl, Heimaey hæfingarstöð og þjónustuíbúðir fyrir fatlaða. Frístund og Féló fylgja grunnskólanum. Forstöðumenn umræddra stofnana munu útbúa og birta sérstakar reglur ef þörf er á.

Mikilvægt er að hver og einn gæti að sínum smitvörnum.