Lokaverkefni 10. bekkjar
Á vorönn vinna nemendur í 10. bekk nokkuð viðamikið rannsóknarverkefni.
Verkefninu er ætlað að endurspegla almenna þekkingu og færni þeirra við lok grunnskólans. Nemendum eru gefnar nær frjálsar hendur um útfærsluna. Lokaverkefnið fyllir stundaskrá nemenda og fellur því öll önnur hefðbundin kennsla niður meðan á því stendur.
Nemendur velja sér sjálf rannsóknarefni og skoða það út frá margvíslegum sjónarhornum. Þau mega líka velja sér sjálf það tjáningarform sem þeir telja henta best. Flestir gera heimasíðu og kynningu en það eru ýmsar útfærslur á því.
Í lok verkefnis kynna nemendur rannsóknina fyrir kennurum og foreldrum og einnig eru settir upp básar í sal skólans þar sem nemendur kynna verkefnið sitt enn frekar.
Verkefnin í ár voru virkilega vel unnin, fjölbreytt og skemmtileg.
Hérna er myndband af verkefnum nemenda
https://www.facebook.com/grunnskolivestmannaeyja/videos/285917639120258/