29. maí 2020

Leikskólinn Kirkjugerði óskar eftir að ráða leikskólakennara eða leiðbeinanda

Fyrir skólaárið 2020-2021

Menntunar- og hæfniskröfur

· Leikskólakennaramenntun, eða önnur menntun sem nýtist í starfi.

· Ábyrgur og jákvæður fagmaður sem á auðvelt með mannleg samskipti

· Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

· Reynsla af vinnu með börnum æskileg

Íslenskukunnátta skilyrði.

Ráðningarhlutfall og tími

· Óskað er eftir að viðkomandi hefji störf eigi síðar en 10. ágúst 2020

· um er að ræða 100% stöður og eina 50% stöðu efttir hádegi.

Starfskröfur

Unnið er samkvæmt starfslýsingum Félags leikskólakennara en starfslýsingu leikskólakennara má finna á http://ki.is

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.

Upplýsingar um starfsemi leikskólans er hægt að nálgast á http://kirkjugerdi.leikskolinn.is/

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.

Umsóknarfrestur er til og með 15. Júní 2020

Umsóknum skal skila á netfangið bjarney@vestmannaeyjar.is

Upplýsingar gefur Bjarney Magnúsdóttir leikskólastjóri í síma 4882281 einnig er hægt að senda fyrirspurninr á netfangið bjarney@vestmannaeyjar.is

Karlar jafnt sem konur er hvött til að sækja um starfið.