30. nóvember 2020

Jólasveinaklúbbur 2020

Í ár er sjötta skiptið sem Jólasveinaklúbbur Bókasafns Vestmannaeyja fer af stað og er klúbburinn orðinn fastur liður í aðdraganda jólanna. Árið í ár verður ekki undantekning þrátt fyrir Covid.

Frá 30. nóvember til 18. desember geta öll börn frá leikskólaaldri og upp í 5. bekk GRV skráð sig í Jólasveinaklúbbinn. Þátttakendur velja sér bók/bækur á Bókasafninu og fá afhenta „lestrarhesta“ til útfyllingar. Krakkarnir lesa í að minnsta kosti 10 skipti, í að lágmarki 15 mínútur í hvert sinn. Fyrir yngri börnin mega foreldrarnir lesa bækurnar. Þau sem eiga jólasveinaskírteini frá fyrri árum geta notað þau en þau sem eru ný í klúbbnum fá jólasveinaskírteini við skráningu í klúbbinn. Ef þau sem hafa tekið þátt áður hafa týnt skírteininu sínu geta að sjálfsögðu fengið nýtt. „Lestrarhestinum“ skal skilað útfylltum inn á safnið 18.-21. desember og þau sem gera það fá glaðning frá bókasafninu.

Góða skemmtun!Starfsfólk bókasafnsins

  • Jol
  • Jol3
  • Jol2
  • Jol-1