6. maí 2021

Íbúðir fyrir fatlað fólk lausar til umsóknar

Vestmannaeyjabær auglýsir lausar til umsóknar 2 íbúðir fyrir fatlað fólk.

Íbúðirnar eru á Strandvegi 26. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ.

Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2021.

Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Þar er farið inn á umsóknir og valið umsókn um félagslegt leiguhúsnæði almennt. Inni á eyðublaðinu er valið leiguhúsnæði fyrir fatlað fólk.

Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á Rauðagerði, gengið inn sunnanmegin og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað.

Nauðsynlegt er að staðfesta eldri umsóknir. Allar nánari upplýsingar veitir Björg Ólöf Bragadóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu bjorg@vestmannaeyjar.is.