10. maí 2022

Hvatningarverðlaun fræðsluráðs 2022

Hvatningarverðlaun fræðsluráðs voru afhent í þriðja sinn þann 9. maí við háðtíðlega athöfn í Eldheimum. Við sama tækifæri voru samningar undirritaðir við þá sem hljóta styrki úr Þróunarsjóði leik- og grunnskóla. Arna Huld Sigurðardóttir, formaður fræðsluráðs, afhenti verðlaunin og undirritaði samningana fyrir hönd fræðsluráðs.

 

Markmið með hvatningarverðlaunum er að vekja athygli á því sem vel er gert í fræðslustarfi. Verðlaunin eru hugsuð sem hrós og hvatning til þeirra sem sýnt hafa framúrskarandi vinnu og er einnig staðfesting á því að viðkomandi er fyrirmynd á því sviði sem viðurkenningin nær til.

Átján tilnefningar til hvatningarverðlauna bárust þetta árið sem bera vott um það frábæra starf sem er í skólunum. Fræðsluráð valdi að venju úr þeim tilnefningum og veitti eftirtöldum aðilum sérstaka viðurkenningu:

Hrafnhildi Skúladóttur og Ragnheiði Borgþórsdóttur fyrir fjölbreytta kennsluhætti í dönsku á unglingastigi. Allt námsefni í dönsku hefur verið aðlagað á tölvutækt form sem hefur gjörbreytt dönskukennslunni.

Emmu H. Vídó Sigurgeirsdóttur fyrir framúrskarandi vinnu og ómetanlegt framlag til leikskólastarfs. Starfsferill Emmu spannar 41 ár hjá leikskólum Vestmannaeyjabæjar. Á þessum árum hefur Emma verið brautryðjandi í leikskólastarfinu og sýnt það í verki að með gleði, hlýju, hvatningu og fagmennsku eru okkur allir vegir færir. Emma er fyrirmynd fyrir þá sem starfa með börnum og börnin sjálf.

Sigríði Sigmarsdóttur, Rakel Ósk Guðmundsdóttur og Ástu Lilju Gunnarsdóttur fyrir tjáskiptakennslu með Communicator. Þær stöllur mynda sérkennsluteymi sem hefur unnið ötullega að því að innleiða vinnu með tjáskiptatölvu og forritið Communicator í góðu samstarfi við foreldra.

Markmiðið með Þróunarsjóði leik- og grunnskóla er að stuðla að þróunar- og nýsköpunarstarfi í skólunum. Sex verkefni hlutu styrk úr Þróunarsjóði leik- og grunnskóla þetta árið og nemur heildarupphæð styrkja kr. 3.260.000 Fræðsluráð tók ákvörðun um að styrkja eftirtalin verkefni:

Haugánar, moltugerð innanhúss í skólum: Markmiðið með verkefninu er að kenna nemendum að búa til moltu innandyra með haugánum, ásamt því að minnka losun úrgangs í skólum. Bryndís Bogadóttir og Sjónlaug Elín Árnadóttir standa að verkefninu.

Stuttmyndaval GRV: Markmiðið með verkefninu er að auka tækjakost og bæta stuttmyndaval GRV. Undirbúa TheBirgitz-kvikmyndhátíð. Stuðla að tengslum GRV við nærumhverfi og bjóða upp á áfanga þar sem nemendur fá að vaxa með verkefnum tengdum þeirra áhugasviði. Birgit Ósk. B. Bjartmarz stendur að verkefninu.

Bókviti: Markmiðið með verkefninu er að kveikja áhuga nemenda á lestri með því að auðvelda þeim að finna bækur eftir áhuga. Um er að ræða efnisflokkun bóka sem endar með smáforriti (appi). Sæfinna Ásbjörnsdóttir, Drífa Þöll Arnardóttir og Esther Bergsdóttir standa að verkefninu.

Heimasíða og rafrænt kennsluefni fyrir myndmennt: Markmiðið með verkefninu er að vinna rafrænan gagnagrunn kennsluefnis fyrir myndlistakennslu, ásamt því að auka sjálfstæði nemenda í faginu. Bjartey Gylfadóttir stendur að verkefninu.

Elskaðu sjálfan þig-þróunarverkefni í sjálfstyrkingu og sjálfsvitund: Markmiðið er að fá nemendur til að skoða markvisst og meta sjálfsvitund sína, styrkleika, veikleika og sjálfsmynd. Hildur Jónasdóttir, Lóa Sigurðardóttir og Lára Skæringsdóttir standa að verkefninu.

50 ára gosafmæli: Markmiðið er að viðhalda þekkingu nýrrar kynslóðar á þeirri miklu sögu sem er að finna í Vestmannaeyjum ásamt því að auka færni í lestri og lesskilningi. Unnur Líf Ingadóttir Imsland og Snjólaug Elín Árnadóttir standa að verkefninu.

  • 279773377_367500738671087_7988343541721552162_n
  • 279909705_1276895232840846_7136322156509962362_n
  • 279227441_1048490429381102_377242666766368141_n
  • 279398716_703428934136341_7973470340627083605_n
  • 279513872_502202928253184_900073916839576825_n
  • 279714959_1028126398113643_3687783042736626709_n
  • 279651741_386406653398087_3068881305059321122_n
  • 279454706_667591737863294_5578976444024673943_n

Myndir: tigull.is