Heimsókn í ráðhúsið
Í síðustu viku heimsóttum við Írisi bæjarstjóra og hennar fólk í ráðhúsinu í verkefninu „Út í sumarið“
Þar fengum við frábærar móttökur og var þátttaka mjög góð. Íris fór yfir breytingarnar sem hafa átt sér stað á húsnæðinu og Áki Heinz Haraldsson fyrrum starfsmaður sagði skemmtilegar sögur. Skoðaður var hver krókur og kimi og höfðu viðstaddir gaman af. Að lokum var boðið upp á kaffi, meðlæti og spjall. Einnig fengum við óvænta gesti frá höfuðborginni. Kunnum við Írisi og hennar fólki bestu þakkir fyrir móttökurnar.