30. júní 2020

Gæsluvöllurinn Strönd opnar 6. júlí nk.

Gæsluvöllurinn Strönd v/ Miðstræti verður starfræktur á tímabilinu 6. -24. júlí. Opnunartími er 13:00-16:00

Gæsluvöllurinn er ætlaður börnum á aldrinum 20 mánaða til 6 ára en þar geta þau leikið sér með öðrum börnum í öruggu umhverfi. Börnin borða nesti um miðjan dag sem þau koma með sjálf.

Komugjald er kr. 700 og verður sendur greiðsluseðill í lok tímabils. Einnig verður hægt að kaupa kort sem dugar í 5 skipti á kr. 3000 og 10 skipti á 6000 kr. gegn staðgreiðslu og skal þá millifæra upphæð korts og sýna kvittun. Reikningsnúmer er 582-26-29, kt. 690269-0159, setja Strönd í athugasemdir. Ekki er tekið við peningum á gæsluvellinum.

Umsjónarmaður gæsluvallarins er Frans Sigurðsson.

Fræðslufulltrúi