7. ágúst 2020

Framkvæmdir við gerð hreystivallar

Framkvæmdir standa nú yfir við gerð hreystivallar við Íþróttahúsið. 

Hreystivellir hafa notið mikilla vinsælda undanfarið. Búið er að grafa frá og jarðvegsskipta á svæðinu og unnið er að því að koma æfingatækjunum niður og festa þau. Þegar tækin eru komin á sinn stað verður farið í það að laga aðgengi að svæðinu og gervigras lagt yfir svæðið.