Eldriborgurum boðið í bíó á mánudaginn
Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá eldgosinu á Heimaey verða ýmsir viðburðir því tengdu á vegum Vestmannaeyjabæjar.
Við höfum því ákveðið að bjóða eldri borgurum í bíó mánudaginn 23. Janúar kl 14:00 í Eyjabíó. Sýnd verður heimildarmyndin Útlendingur heima, uppgjör við eldgos eftir Jóhönnu Ýr Jónsdóttir og Sighvat Jónsson. Sjoppan verður opin fyrir þá sem vilja kaupa sér popp og gos, eða eitthvað annað sniðugt til.
Hlökkum til að sjá ykkur
Thelma og Kolla