5. maí 2022

AUGLÝSING UM KJÖRSTAÐ Í VESTMANNAEYJUM

Kjörstaður í Vestmannaeyjum við sveitarstjórnarkosningar 14. maí 2022 verður í Barnaskólanum, inngangar eru um norður- og suðurdyr. Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr.

Kjörfundur hefst kl. 9:00 árdegis og lýkur kl. 22:00 að kveldi sama dags.

Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir:

  • Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 6. apríl 2022 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra, sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.
  • Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 6. apríl 2022 við Hátún til og með Ægisgötu, auk þeirra, sem búa að Hraunbúðum og húsum er bera bæjarnöfn.

Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.
Aðsetur Yfirkjörstjórnar á kjördag verður á kjörstað í Barnaskólanum.

Talning atkvæða verður í sal Barnaskólans og hefst talning að loknum kjörfundi kl. 22:00.

Vestmannaeyjum, 5. maí 2022
Yfirkjörstjórn Vestmannaeyjabæjar

Jóhann Pétursson, formaður

Ólafur Elísson           Þór Ísfeld Vilhjálmsson