4. júní 2020

Áhugakönnun

KÖNNUN Á ÁFORMUM MARKAÐSAÐILA VARÐANDI UPPBYGGINGU FJARSKIPTAINNVIÐA

Fyrirhuguð er lagning ljósleiðara í Vestmannaeyjabæ, sem veita á öruggt þráðbundið netsamband í dreifbýli og þéttbýli sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að tengja öll lögheimili og fyrirtæki í sveitarfélaginu. Einnig standi eigendum frístundahúsa, sem staðsett eru í dreifbýli Vestmannaeyjabæjar, til boða að tengjast ljósleiðaranum. Gert er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu sína á ljósleiðarakerfinu gegn gjaldi.

Auglýst er eftir:

A. Aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingu eða annarri a.m.k. 100Mb/s þráðbundinni netþjónustu í Vestmannaeyjabæ (utan og/eða innan þéttbýlis) á næstu þremur árum á markaðslegum forsendum.

B. Hæfum aðila, eða aðilum, til að taka að sér að byggja upp ljósleiðarakerfi með stuðningi frá opinberum aðilum og e.t.v. reka til framtíðar, komi til þess að enginn aðili svari lið A. hér að ofan. Aðilar sem óska eftir stuðningi skulu uppfylla tilteknar kröfur um fjarskiptaleyfi, fjárhagslegan styrk, reynslu af uppbyggingu og rekstri sambærilegra kerfa, raunhæfa verkáætlun o. fl.

C. Eiganda mögulegra fyrirliggjandi fjarskiptainnviða í Vestmannaeyjabæ sem er tilbúinn að leggja þá til við uppbygginguna gegn endurgjaldi sem bjóðist öllum sem lýsa yfir áhuga á uppbyggingu samkvæmt B. hér að ofan á jafnræðisgrundvelli.

Áhugasamir skulu senda tilkynningu til EFLU verkfræðistofu á netfangið kristinn.hauksson@efla.is fyrir kl. 12:00 þann 10. júní 2020. Í tilkynningunni skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga um ofangreint eftir því sem við á.

Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum og skýringum og skulu slíkar fyrirspurnir sendar á netfangið: kristinn.hauksson@efla.is

Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir Vestmannaeyjabæ né þá sem sýna verkefninu áhuga.
Áhugakönnun

EFLA VERKFRÆÐISTOFA
+354 412 6000           efla@efla.is  www.efla.is