25. október 2021

Aðstaða til sjósunds í Vestmannaeyjum

Vestmannaeyjabær óskar eftir áhugasömum aðila til að byggja upp sjósundaðstöðu í Klaufinni/Höfðavík af einkaaðilum eða í samstarfi við Vestmannaeyjabæ.

Mikill sjósundsáhugi er á Íslandi og eru Vestmannaeyjar ekki þar undanskilin. Undanfarin misseri hafa margir eyjamenn og gestir stundað sjósund úr Höfðavík. Umræða hefur verið um að bæta þurfi aðstöðu sem mun nýtast heimamönnum og ferðamönnum sem hingað koma. Yrði þetta enn eitt aðdráttaraflið ef af yrði.

Umsóknir berist umhverfis og framkvæmdasviði umhverfissvid@vestmannaeyjar.is fyrir 25. nóvember 2021.

Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að hafa samband við umhverfis- og framkvæmdasvið bæjarins á sama netfang, í síma 488 2530 eða á skrifstofu að Skildingavegi 5.

  • Sjosund
  • _DSC0207

Myndir: Tói Vídó