Fara í efni
07.04.2020 Fréttir

Tilkynning frá aðgerðastjórn - 27.3.2020

Deildu

Tvö smit hafa greinst til viðbótar í Vestmannaeyjum og eru staðfest smit því orðin 53. Báðir einstaklingarnir voru þegar í sóttkví. Fjöldi einstaklinga sem hafa verið settir í sóttkví er orðinn 588 og hafa 93 lokið sóttkví.

Minnt er á að fólk fari að leiðbeiningum um sóttvarnir, virði samkomubann og fjarlægðarmörk upp á 2 metra og brosi til náungans. Lúlli löggubangsi brosir til ykkar úr glugga lögreglustöðvarinnar.

Aðgerðastjórn