Goslokanefnd vinnur nú hörðum höndum að því að gera hátíðina sem ánægjulegasta með þeim takmörkunum sem fyrir liggja.
Af því tilefni óskar Goslokanefnd eftir samstarfi við einstaklinga/og eða fyrirtæki sem áhuga hafa á að koma að hátíðinni, hvort heldur sem er með hugmyndum, ábendingum, spurningum eða öðru viðeigandi. Hægt er að hafa samband í gegnum tölvupóst goslok@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2000.
