Ráðhús Vestmannaeyjabæjar er staðsett við Ráðhúströð, 900 Vestmannaeyjar. Húsið sem var áður sjúkrahús Eyjabúa á árunum 1928—1973. Starfsemi bæjarskrifstofa bæjarins var færð í Ráðhúsið árið 1976. Í dag er þar starfsemi stjórnsýslu- og fjármálasviðs og fjölskyldu- og fræðslusviðs. Vestan við Ráðhúsið er Safnahús Vestmannaeyjabæjar.
Þjónustu Vestmannaeyjabæjar er skipt niður á þrjú svið sem hvert og eitt sér um og ber ábyrgð á.
Fjölskyldu- og fræðslusvið ber ábyrgð á öllum félagsþjónustumálum sveitarfélagsins, fræðslu- og uppeldismálum og æskulýðs- og íþróttamálum.
Stjórnsýslu- og fjármálasvið ber ábyrgð á allri stjórnsýslu og fjármálum sveitarfélagsins, markaðs- og ferðamálum, starfmannamálum og menningarmálum.
Umhverfis- og framkvæmdasvið ber ábyrgð á tæknideild bæjarins, þjónustumiðstöð, Vestmannaeyjahöfn, atvinnumálum, slökkviliði og almannavörnum. Þjónustu umhverfis- og framkvæmdasviðs er að finna að Tangagötu 1, 900 Vestmannaeyjar.