- Aðrar
- Íbúakönnun 2013, það sem þú þarft að vita
- Dagskrá Goslokahátíðar 2013 langt á veg komin
- Íbúakönnun um hótel við Hástein
- Starf skólastjóra Grunnskóla Vestmannaeyja
- Daggæsla í heimahúsum
- Hreinsunardagur á Heimaey 11.maí n.k.
- Sumarstarfsfólk- umsóknafrestur til 10. maí
- Málun – útboð
- Hreinsunarátak - Sumarið 2013
- Síðasti vetrardagur og sumardagurinn fyrsti
- Eldri
11.júní 2012 - 08:28
ÚTBOÐ - Sorpförgun - Sorphirða
V1201 Sorpförgun í Vestmannaeyjabæ 2012-2015
Vestmannaeyjabær augýsir útboð á sorpförgun og rekstri móttöku- og söfnunarstöðvar í Vestmannaeyjum 2012-2015. Um er að ræða m.a. rekstur söfnunar- og móttökustöðvar, jarðgerð, flutningur og förgun úrgangs og rekstur landmótunar. Viðkomandi skal útvega tæki, gáma, flutning og annað sem þarf til verksins sem og standa skil á starfsleyfum sem og öðrum leyfum sem þarf til að stunda slíka starfsemi.
V1202 Sorphirða í Vestmannaeyjabæ 2012-2015
Vestmannaeyjabær auglýsir útboð á sorphirðu frá heimilum í Vestmannaeyjum. Um er að ræða 1650 heimili og er magn sem þarf að hirða um 900 tonn á ári.
Í Vestmannaeyjum fer fram frekari flokkun á sorpi frá heimilum og eru 3 tunnur við hvert heimili auk þess sem gler er sett í poka.
Lagt er upp með að sorphirða fari fram í 50 skipti á ári frá hverju heimili.
Reiknað er með að verktími hefjist 1.spetember 2012 í báðum tilfellum.
Heimilt er að bjóða í verkin saman ef áhugi er fyrir hendi.
Bæði verkin eru auglýst á evrópska efnahagssvæðinu
Útboðsgögn skal panta hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar, Tangagötu 1, 900 Vestmannaeyjum, sími 488 2530. Netfang olisnorra@vestmannaeyjar.is, og verða þau afhent á tölvutæku formi.
Tilboð verða opnuð á Skrifstofu Umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmanneyjabæjar að Tangagötu 1 900 Vestmannaeyjum (2. hæð), þann 6. júlí 2012, kl 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar



