- Aðrar
- Opið hús í Hamri (Búhamri 17)
- Íbúakönnun 2013, það sem þú þarft að vita
- Dagskrá Goslokahátíðar 2013 langt á veg komin
- Íbúakönnun um hótel við Hástein
- Starf skólastjóra Grunnskóla Vestmannaeyja
- Daggæsla í heimahúsum
- Hreinsunardagur á Heimaey 11.maí n.k.
- Sumarstarfsfólk- umsóknafrestur til 10. maí
- Málun – útboð
- Hreinsunarátak - Sumarið 2013
- Eldri
29.maí 2012 - 09:48
Viðmiðunardagur kjörskrár
Viðmiðunardagur kjörskrár vegna forsetakosninganna er 9. júní n.k.
Á kjörskrá skal taka alla þá sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrár þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag, uppfylli þeir að öðru leyti skilyrði 1. mgr. 1. gr. um kosningalaga. Þjóðskrá Íslands vill af þessu tilefni minna á nauðsyn þess að íbúaskráningin sé sem réttust. Flutningur á lögheimili á milli sveitarfélaga og innan sveitarfélags, sem á sér stað eftir 9. júní 2012 mun ekki hafa áhrif á útgefinn kjörskrárstofn. Þetta þýðir að tilkynningar um lögheimilisbreytingar þurfa að berast okkur í síðasta lagi 8. júní eigi þær breytingar að verða skráðar í þjóðskrá fyrir 9. júní.
Unnt er að ganga frá skráningu flutningstilkynningar rafrænt á vef Hagstofu www.skra.is eða líta við í Ráðhúsinu.



