18.maí 2012 - 13:01

Ný heimasíða Hraunbúða

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hraunbúðir hefur opnað glænýja heimasíðu. Á heimasíðunni er að finna upplýsingar um þjónustu, hvað er á döfinni og aðrar upplýsingar um heimilið.
 
Gaman er að lesa um sögu dvalarheimilisins frá því elliheimilið Skálholt við Urðarveg 43 var vígt 11. nóvember 1950, upphaf starfsemi Hraunbúða þann 5. október 1974 og um þróun þjónustunnar sem veitt er þar. Tómas Sveinsson forstöðumaður eldhúss Hraunbúða á veg og vanda að heimasíðunni og er hún unnin í samvinnu við Smartmedia. Heimasíðan verður uppfærð reglulega og getur fólk fylgst með því helsta á döfinni á Hraunbúðum.
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159