- Aðrar
- Íbúakönnun 2013, það sem þú þarft að vita
- Dagskrá Goslokahátíðar 2013 langt á veg komin
- Íbúakönnun um hótel við Hástein
- Starf skólastjóra Grunnskóla Vestmannaeyja
- Daggæsla í heimahúsum
- Hreinsunardagur á Heimaey 11.maí n.k.
- Sumarstarfsfólk- umsóknafrestur til 10. maí
- Málun – útboð
- Hreinsunarátak - Sumarið 2013
- Síðasti vetrardagur og sumardagurinn fyrsti
- Eldri
3.maí 2012 - 08:19
Gatnagerðarframkvæmdir á næstunni
Um þessar mundir sem og á næstunni verða nokkrar gatnagerðarframkvæmdir í bænum.
Í dag fimmtudag er áætlað að fræsa upp malbik á hluta Strandvegar, það er frá Herjólfsgötu og til austurs að Kirkjuvegi.
Í framhaldi af því verður fræst á Kirkjuvegi frá Ráðhúströð að Vallargötu og á Heiðarvegi frá Hásteinsvegi að Bessastíg.
Strax að aflokinni fræsingu verður umferð hleypt um göturnar.
Í næstu viku er síðan áætlað að malbika þessar götur ásamt fleiri svæðum m.a. sem tilheyra framkvæmdum Ísfélagsins.
Bæjarbúar eru beðnir velvirðingar á því ónæði sem af þessu framkvæmdum fylgir og eru beðnir að taka tillit til þeirra sem verkin vinna.
Þá er mjög áríðandi að bifreiðum sé ekki lagt í bifreiðastæði umræddra gatnahluta, meðan fræsing fer fram.




