18.apríl 2012 - 08:15

Tilkynning frá skipulagsráði

Íþrótta-og útivistarsvæðið við Hástein – tillaga af skipulagsbreytingum.
Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar verður með opinn kynningarfund þriðjudaginn 24. apríl kl. 17:00 í fundarsal sviðsins að Tangagötu 1. 2h.
 
 
Tilefnið er að kynna breytingartillögu fyrir aðal-og deiliskipulag skipulagssvæðis. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir byggingarreit sex hæða hótels í Hásteinsgryfju og tjaldsvæði við Þórsheimili.
Hönnuður skipulagstillögunar og skipulagsfulltrúi munu sjá um kynningu og fara yfir fyrirliggjandi gögn.
 
Nánari upplýsingar gefur skipulags- og byggingarfulltrúi Vestmannaeyja á skrifstofu sinni að
Tangagötu 1. Sími 488-2530
 
 
Virðingarfyllst,
Skipulags- og byggingarfulltrúi
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159