- Aðrar
- Opið hús í Hamri (Búhamri 17)
- Íbúakönnun 2013, það sem þú þarft að vita
- Dagskrá Goslokahátíðar 2013 langt á veg komin
- Íbúakönnun um hótel við Hástein
- Starf skólastjóra Grunnskóla Vestmannaeyja
- Daggæsla í heimahúsum
- Hreinsunardagur á Heimaey 11.maí n.k.
- Sumarstarfsfólk- umsóknafrestur til 10. maí
- Málun – útboð
- Hreinsunarátak - Sumarið 2013
- Eldri
2.apríl 2012 - 15:35
Starfslaun bæjarlistamanns 2012
Fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar auglýsir eftir tillögum og umsóknum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2012.
Í gildandi reglum um úthlutun starfslaunanna segir m.a.:
- Sækja skal um starfslaun til fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyjabæjar.
- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagsamtökum.
- Að jafnaði koma þeir einir til greina sem bæjarlistamenn sem búsettir eru í Vestmannaeyjum.
- Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.
- Umsóknarfrestur er til og með 13.apríl 2012. Fræðslu- og menningarráð velur úr framkomnum tillögum og umsóknum og úthlutar á sumardaginn fyrsta.
Umsóknum skal skila til fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyjabæjar ekki seinna en 13. apríl nk. og skulu þær vera í samræmi við framangreindar reglur.
Reglurnar í heild er hægt að fá afhentar á bæjarskrifstofunni í Ráðhúsinu eða lesa á www.vestmannaeyjar.is
Nánari upplýsingar veita Kristín Jóhannsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi og Rut Haraldsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs í síma 4882000.
Fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar



