2.apríl 2012 - 15:24

Auglýsing um skipulag

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Eldheima, safnasvæði gosminja við Suðurveg
 
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 29. mars 2012 að auglýsa breytingartillögu deiliskipulags Eldheima við Suðurveg í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan felst í meginatriðum í að afmarka byggingarreit yfir rústum Gerðisbrautar 10 og byggja þar safnahús Eldheima, bættu aðgengi gesta með gönguleiðum og bílastæðum.
Breytingartillagan er sett fram í greinargerð og á deiliskipulagsuppdrætti. Tillagan verður auglýst í samræmi við ákvæði skipulagslaga á tímabilinu 4. apríl 2012 til 16. maí 2012. Deiliskipulagið liggur frammi í safnahúsi Ráðshúströð, hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, 2. hæð og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar, www.vestmannaeyjar.is.
Frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum er til kl. 12:00 þann 16. maí 2012. Skila skal inn athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa, Tangagötu 1, 900 Vestmannaeyjum. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.
 

skipulags- og byggingarfulltrúi.
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159