23.mars 2012 - 11:44

Viðurkenningar fyrir eldvarnargetraunina

 
 
Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningsmanna efndi til árlegs Eldvarnaátaks í nóvember 2011.Öll átta ára börn hér í Eyjum komu á slökkvistöðina og voru frædd um eldvarnir og öryggismál og þeim síðan gefinn kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni 2011.
 
 
Góð þátttaka var í Eldvarnagetrauninni, sem einnig birtist í barnablaði Morgunblaðsins. Nöfn 33 barna víðs vegar af landinu hafa verið dregin úr innsendum lausnum.Eitt barnana var héðan úr Eyjum Björn Ásgeir Kristjánsson. Hann mætti á slökkvistöðina til að taka við viðurkenningu og verðlaunum 3. Mars 2012
Við í slökkviliði Vestmannaeyja viljum þakka öllum 8 ára börnum í Eyjum fyrir veitta aðstoð í eldvörnum á heimilum.
 
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159