19.09.2012

Umhverfis- og skipulagsráð - 169

 
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 169. fundur haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs, 19. september 2012 og hófst hann kl. 12:00
 
 
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Kristín Jóhannsdóttir vara form.,
Hörður Óskarsson, Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson,
Sigurður Smári Benónýsson og Ólafur Þór Snorrason.
 
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
 
Hörður Óskarsson vék af fundi í 3, 5 og 13 máli.
Pétur Fannar Hreinsson vék af fundi í 3 og 13 máli.
 
 
 
Dagskrá:
 
1. 201207035 - Deiliskipulag austurbæjar - skipulagsbreyting
Skipulagstillagan var auglýst frá 25 júlí til 5 sept. 2012 og liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði til samþykktar.
Á kynningarferlinu barst eitt bréf með athugasemdum dags. 3.9.2012.
Athugasemdir sem bárust á kynningarferli skipulags við gosmynjasvæði Eldheima gilda við afgreiðslu erindis. Eitt bréf barst dags. 13.5.2012.
 
Afgr. ráðs á bréfi dags. 13.5.2012.
Ráðið bendir á að aðkomu að bílastæði Eldheima hefur verið breytt frá fyrri tillögu. Ráðið getur ekki orðið við öðrum athugasemdum, en mun við hönnun bílastæða taka tillit til ábendinga bréfritara eins og mögulegt er.
Afgr. ráðs á bréfi dags. 3.9.2012.
1. Ráðið getur ekki orðið við ósk um að bílastæði verði eingöngu sunnan við Austurgerði en til mótvægis verði sett inn ákvæði um hljóðmön milli bílastæðis og lóðarmarka Austurgerðis 1.
2. Ráðið bendir á að á framkvæmdatíma Eldheima er óhjákvæmilegt að rask verði í nærumhverfi framkvæmdsasvæðisins.
3. Ráðið getur ekki orðið við ósk bréfritara um ástandskoðun húsnæðis.
 
Ráðið samþykkir breytingartillögu deiliskipulags með vísan til ofangreinda atriða og 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
 
Ráðið felur Skipulagsfulltrúa að gera breytingar á skipulagsgögnum og svara innsendum athugasemdum í samræmi við bókun skipulagsráðs.
 
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
 
 
2. 201207034 - Deiliskipulag Miðbæjar - skipulagsbreyting
Skipulagstillagan var auglýst frá 25 júlí til 5 sept. 2012 og liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði til samþykktar.
Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir skipulasgbreytingu sbr. auglýst tillaga.
Ráðið vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar sbr. 41 gr. skipulagslaga.
 
 
3. 201106061 - Deiliskipulag Ísfélags Vestmannaeyja við FES Strandvegi. Tillaga.
Skipulagstillagan var auglýst frá 25 júlí til 5 sept. 2012 og liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði til samþykktar.
Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir skipulasgbreytingu sbr. auglýst tillaga.
Ráðið vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar sbr. 41 gr. skipulagslaga.
 
 
4. 201207057 - Deiliskipulag á iðnaðarsvæði IS-4 á Eiði.
Skipulagstillagan var auglýst frá 25 júlí til 5 sept. 2012 og liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði til samþykktar.
Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir skipulasgbreytingu sbr. auglýst tillaga.
Ráðið vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar sbr. 41 gr. skipulagslaga.
 
 
5. 201208072 - Net ehf. Umsókn um byggingarleyfi
Haraldur Óskarsson fh. Net ehf. sækir um leyfi fyrir byggingu iðnaðarhúsnæðis við Kleifar sbr. innsend gögn.
Teikn. Sigurjón Pálsson.
Fyrir liggur jákvæð umsögn Eldv.eftirlits Vestmannaeyja.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæða umsögn Vinnueftirlits og með vísan í athugasemdalista byggingarfulltrúa dags. 18.9.2012.
Byggingarleyfisgjald kr. 219.395 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
 
 
6. 201206112 - Kirkjuvegur 66. Umsókn um byggingarleyfi.
(6 mál frá 167 fundi - frestað erindi)
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga lóðarhafa um að byggja tvíbýlishús að Kirkjuvegi 66.
Tvö bréf með athugasemdum bárust við auglýstri tillögu.
Bréf 1. dagsett 7/9, mótt. 11/9
Bréf 2. ódagsett, mótt. 11/9
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að setja upp umferðarteljara við göturnar. Einnig óskar ráðið eftir umsögn lögreglustjórans í Vestmannaeyjum.
 
 
7. 201206082 - Faxastígur 44. Fyrirspurn varðandi byggingu atvinnuhúsnæðis
Einar Birgir Einarsson fh. lóðarhafa óskar eftir afstöðu ráðsins til byggingar atvinnuhúsnæðis sbr. innsendar teikningar dags. júlí 2012.
Afgreiðsla:
Ráðið lítur jákvætt á erindi lóarhafa og óskar eftir fullnægjandi gögnum sbr. ákvæði byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
 
 
8. 201209006 - Hásteinsvegur 47. Umsókn um byggingarleyfi
Sigurður Þórir Jónsson sækir um leyfi fyrir sólstofu við suðurhlið húsnæðis sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla: Ráðið samþykkir erindið.
Afgreiðslugjald kr. 12.286 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
 
 
9. 201209028 - Dverghamar 37. Umsókn um byggingarleyfi
Sigurvin Marinó Sigursteinsson sækir um leyfi fyrir sólstofu á svalir Dverghamri 37 sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla: Ráðið samþykkir erindið.
Afgreiðslugjald kr. 12.286 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
 
 
10. 201209047 - Brattagata 4. Umsókn um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu og stækkun lóðar.
Brynjar Smári Unnarsson sækir um stækkun lóðar og byggingarleyfi fyrir bílgeymslu á byggingarreit við norð/vestur lóðarmörk.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda erindið til grenndarkynningar sbr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Að grenndarkynningu lokinni mun erindið verða tekið til afgreiðslu.
Gjald vegna grenndarkynningar er kr. 15.552 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
 
 
11. 201209027 - Skildingavegur 4. Umsókn um byggingarleyfi
Hilmar Kristjánsson fh. Ribsafari ehf. sækir um leyfi fyrir vöruhurð á austurhlið húsnæðis Skildingavegi 4. sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið með vísan til athugasemdalista byggingarfulltrúa dags. 19.9.2012..
Afgreiðslugjald kr. 12.286 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
 
 
12. 201209048 - Græðisbraut 1. Umsókn um leyfi fyrir flaggstöngum.
Ríkharður Hrafnkelsson f.h. lóðarhafa sækir um leyfi fyrir þrem flaggstöngum við Heiðarveg.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og óskar eftir umsögn slökkviliðsstjóra.
 
 
13. 201209070 - Strandvegur 14. Umsókn um byggingarleyfi
Sigurjón Pálsson fh. Ísfélags sækir um leyfi fyrir breytingum á atvinnuhúsnæði Strandvegi 14 sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og vísar erindi til umsagnaraðila með vísan til 2.4.1. gr. Byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
 
 
14. 201206089 - Hlíðarvegur 5. Umsókn um byggingarleyfi
Björgvin Björgvinsson fh. lóðarhafa sækir um leyfi fyrir breytingum á atvinnuhúsnæði sbr. innsend gögn.
Teikn. Björgvin Björgvinsson.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og vísar erindi til umsagnaraðila með vísan til 2.4.1. gr. Byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
 
 
15. 201209084 - Stapavegur 9. Umsókn um byggingarleyfi fyrir sólstofu.
Páll Þór Guðmundsson Stapavegi 9 sækir um leyfi fyrir sólstofu yfir svalir sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda erindið til grenndarkynningar sbr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Að grenndarkynningu lokinni mun erindið verða tekið til afgreiðslu.
Gjald vegna grenndarkynningar er kr. 15.552 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:50
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159