Bæjarráð Vestmannaeyja - 2940. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
18. september 2012 og hófst hann kl. 12.00
Fundinn sátu:
Páley Borgþórsdóttir, Páll Scheving Ingvarsson, Páll Marvin Jónsson og Elliði Vignisson.
Fundargerð ritaði: Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá:
|
1.
|
201209072 - Stofnun samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
|
| |
Bæjarstjórar Dalvíkurbyggðar, Snæfellsbæjar, Vestmannaeyja, Grindavíkur og Fjallabyggðar eiga frumkvæði að því að stofnuð verði samtök sveitarfélaga sem hagsmuna eiga að gæta í sjavarútvegi. Vestmannaeyjabær hefur fengið boð um þátttöku í samtökum þessum og mun eiga þar einn fulltrúa, árgjaldið verður kr. 400 þúsund.
Bæjarráð fagnar frumkvæði bæjarstjóranna og telur að samtökin komi til með að verða mikilvægur vettvangur fyrir sameiginlega hagsmunagæslu.
Bæjarstjórn samþykkir þáttöku og felur bæjarstjóra að verða fulltrúi á stofnfundi samtakanna.
|
|
|
|
|
|
2.
|
201209071 - Umræða um hækkun virðisaukaskatts á sölu gistingar.
|
| |
Bæjarráð Vestmannaeyja hvetur ríkisstjórn Íslands til þess að endurskoða áform um skattahækkanir sem augljóslega munu hafa mjög alvarleg áhrif á rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar og bitna harkalega á atvinnulífi. Viðamikil átaksverkefni af hendi hins opinbera til að efla Ísland sem ferðamannaland hafa blásið kjarki í brjóst ferðaþjónustuaðila. Þess vegna kemur umræðan um skattahækkanir sem þruma úr heiðskíru lofti og setur allar áætlanir og fjárfestingar í uppnám.
Með hinum miklu samgöngubótum sem felast í Landeyjahöfn á ferðaþjónusta í Vestmannaeyjum nú tækifæri til að verða einn af grundavallaratvinnuvegum Vestmannaeyja og eykst hlutur hennar sífellt. Með vaxandi ferðamannastraumi hafa ferðaþjónustufyrirtæki svarað kalli eftir aukinni þjónustu með ákvörðun um auknar fjárfestingar. Það var gert í þeirri trú að hægt yrði að byggja upp fyrirtækin í rekstrarumhverfi sem stöðugleiki ríkir. Hækkun virðisaukaskatts mun augljóslega setja slík áform í uppnám.
Bæjarráð bendir á að hótel og gistihús starfa í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi og hafa takmarkað svigrúm til þess að velta hækkunum sem þessum út í verðlagið. Slík hækkun skerðir samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu verulega. Fyrirhuguð hækkun mun leiða til lækkunar á tekjuskattsgreiðslum í greininni og bent hefur verið á að veruleg hætta er á að hún muni leiða til aukinna undanskota og skila sér þannig í óheilbrigðara viðskiptaumhverfi.
Ferðaþjónustan er ung atvinnugrein og ein af fáum vaxtarbroddum flestra dreifðra byggða í landinu. Fjöldi fólks í Vestmanneyjum byggir nú framfærslu sína og fjölskyldna á störfum í ferðaþjónustu, en fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts mun leiða til samdráttar og uppsagna starfsfólks. Hvert starf er afar dýrmætt. Það góðæri sem nú er í ferðaþjónustunni ætti frekar að nýta til að leyfa þessum ungu fyrirtækjum að eflast og skjóta styrkari fótum undir rekstur sinn.
Bæjarráð Vestmannaeyja telur afar mikilvægt að ríkisstjórn Íslands átti sig á afleiðingum hækkunar veltuskatta í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Miklar skattahækkanir, eins og lýst hefur verið í fjölmiðlum undanfarið, munu skerða mjög samkeppnishæfni íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja. Öll markaðsvinna er unnin með löngum aðdraganda, þannig að ef hækkun virðisaukaskatts verður að veruleika núna þá munu fyrirtækin sjálf þurfa að bera þungan af þeim skattaálögum fyrst í stað. Ekki verður hægt að bregðast við með einhliða verðhækkunum á alþjóðlegum mörkuðum. Þegar áhrif af skattahækkunum komast inn í verðlag þjónustunnar mun markaðslögmálið segja til sín og eftirspurn minnka. Neikvæð áhrif fyrir ferðaþjónustuaðila eru því tvíþætt og hafa ber það í huga.
Bæjarráð Vestmannaeyja tekur undir þau sjónarmið sem Samtök atvinnulífsins hafa sett fram um afleiðingar skattahækkana og gagnrýna skýrslu starfshóps um skattlagningu í ferðaþjónustu, en þar er á engan hátt vikið með eðlilegum hætti að markaðslegum afleiðingum skattahækkana. Enn og aftur hvetur bæjarráð Vestmannaeyja ríkisstjórn Íslands til að hverfa frá hugmyndum um sértæka skatta á atvinnulífið. Í því samhengi er minnt á að útgerðir í Vestmannaeyjum þurfa á nýju fiskveiðiári að greiða um 2700 milljónir í sértækan skatt. Frekari álögur á samfélagið hér eru hreinlega ekki réttlætanlegar.
|
|
|
|
|
|
3.
|
201209063 - Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga - kjörbréf o.fl.
|
| |
Erindi frá SASS dags. 11. september s.l. þar sem fram kemur að ársþing SASS verður haldið þann 18. og 19. október n.k. á Hellu.
|
|
|
|
|
|
4.
|
201209080 - Styrkbeiðni vegna 25 ára sögu Háskólans á Akureyri.
|
| |
HA verður 25 ára á árinu og af því tilefni var ákveðið að skrifa sögu hans. Óskað er eftir styrkbeiðni í heillaóskaskrá í bókinni að upphæð 25.000 + VSK.
|
| |
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu þar sem það rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar.
|
|
|
|
|
|
5.
|
200707340 - Fundargerðir nefnda lagðar fyrir bæjarráð
|
| |
Fundargerð fjölskyldu- og tómstundaráðs nr. 115 frá 12.september s.l.
Fundargerð fræðslu- og menningarráðs nr. 250 frá 13. september s.l.
Fundargerð framkvæmda-og hafnarráðs nr. 133 frá 17. september s.l.
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:50