12.09.2012

Fjölskyldu- og tómstundaráð - 115

 
 
Fjölskyldu- og tómstundaráð - 115. fundur
 
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
12. september 2012 og hófst hann kl. 16:15
 
 
Fundinn sátu:
Páll Marvin Jónsson, Jórunn Einarsdóttir, Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir, Jarl Sigurgeirsson, Sigurhanna Friðþórsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Lísa Njálsdóttir.
 
Fundargerð ritaði:  Guðrún Jónsdóttir, yfirfélagsráðgjafi
 
 
 
Dagskrá:
 
1.
200704148 - Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
 
2.
201209044 - Greining fjárhagsaðstoðar 2012
Yfirfélagráðgjafi gerði grein fyrir stöðu fjárhagsaðstoðar sem greidd hefur verið á árinu 2012 og lagði fram minnisblað og yfirlit fyrir fyrstu 8 mánuði ársins.
Fjölskyldu- og tómstundaráð þakkar kynninguna.
 
3.
201209045 - Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Kynning á ÍBV-íþróttafélag - fyrirmyndarfélag ÍSÍ og ósk um styrk.
Fjölskyldu- og tómstundaráð óskar ÍBV íþróttafélagi innilega til hamingju með þessa viðurkenningu. Hvað varðar sérstakan styrk til félagsins þá getur ráðið ekki orðið við erindinu þar sem ekki er gert ráð fyrir þessum útgjöldum í fjárhagsáætlun ársins 2012.
 
4.
201209029 - Ósk um stuðning vegna Ólympiuferðar skáklandsliðsins
Ósk um stuðning vegna Ólympiuferðar skáklandsliðsins
Fjölskyldu- og tómstundaráð getur ekki orðið við erindinu
 
 
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:25
 
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159