29.08.2012
Framkvæmda- og hafnarráð - 132
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 132. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
29. ágúst 2012 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Jón Árni Ólafsson, Íris Róbertsdóttir, Ragnar Óskarsson, Sveinn Rúnar Valgeirsson, Guðmundur Þ B Ólafsson, Ólafur Þór Snorrason.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Friðrik Björgvinsson sat fundinn undir 4. og 5. máli.
Dagskrá:
1. 201109006 - Hafnasambandsþing 2012
Undirbúningur þings Hafnasambands Íslands sem haldið verður í Vestmannaeyjum 20.-21. september 2012. Farið yfir dagskrá þingsins sem hefst eftir hádegi fimmtudaginn 20. sept. og lýkur síðdegis föstudaginn 21. sept. nk. Einnig kom fram að Vestmannaeyjahöfn hefur rétt á að senda 5 fulltrúa á þingið.
Ráðið samþykkir að senda 5 fulltrúa á þing Hafnasambands Íslands og samþykkir fyrirliggjandi dagskrá.
2. 201201084 - Gatnagerðaráætlun 2012
Farið yfir gatnaframkvæmdir og malbikun ársins. Reiknað er með að malbika í Bessahrauni og geymslusvæði smábáta ásamt viðgerðum. Einnig að malbikað verði á plani Þjónustumiðstöðvar um 400m2.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi áætlun.
3. 201108115 - Geymslusvæði fyrir smábáta norðan Strandvegar
Farið yfir hugmyndir að gjaldskrá og nýtingu á geymslusvæði sunnan Strandvegar.
Ráðið felur Sveini R. Valgeirssyni og Ólafi Þ. Snorrasyni að koma með fullmótaðar tillögur að gjaldskrá og nýtingu svæðis á næsta fund ráðsins
4. 201106062 - Útrás vegna Fráveitu Vestmannaeyja
Miklar framkvæmdir á vegum Fráveitu Vestmannaeyjabæjar hafa staðið yfir að undanförnu og Sveinn R Valgeirsson, Ólafur Snorrason og Friðrik Björgvinsson tæknifræðingur greindu frá stöðunni, en framundan er meðal annars að fleyta nýrri útrásarpípu norður fyrir Eiði og síðan að tengja hana en þetta er mikil og vandasöm framkvæmd. Nú er búið að koma útrásarpípunum í sjóinn og eru þær nú innanhafnar við Hringskersgarðinn og beðið eftir því að hægt verði að koma þeim fyrir og tengja norðan Eiðis.
5. 201208093 - Samningur um sorphirðu og sorpförgun 2012
Fyrir lágu drög að samningum við Kubb ehf. vegna sorphirðu og sorpförgun í Vestmannaeyjum sem tekur gildi 1.nóvember 2012.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi drög og felur framkvæmdastjóra Umhverfis- og framkvæmdasviðs að ljúka samningum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.15



