09.08.2012
Umhverfis- og skipulagsráð - 167
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 167. fundur haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs, 9. ágúst 2012 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Hörður Óskarsson, Pétur Fannar Hreinsson, Valur Bogason, Hörður Þórðarson, Sigurður Smári Benónýsson og Ólafur Þór Snorrason.
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 201207060 - Eldheimar. Umsókn um byggingarleyfi.
(21 mál frá 166 fundi - frestað erindi)
Ólafur Þór Snorrason f.h. Vestmannaeyjabæjar sækir um byggingarleyfi fyrir menningarhúsi Eldheima sbr. innsend gögn.
Teikn. Björgvin Björgvinsson.
Fyrir liggja umsagnir Vinnueftirlits, Heilbr.eftirlits Suðurlands og Eldv.eftirlits Vestmannaeyja.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir þar sem uppdrættir eru í samræmi við byggingarreglugerð og deiliskipulag svæðis. Erindið er samþykkt með vísan til umsagna umsagnaraðila.
Byggingarleyfisgjald kr. 456.341 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
2. 201208010 - Bessahraun 5. Umsókn um lóð
Gísli Geir Tómasson og Lilja Björg Arngrímsdóttir sækja um einbýlishúsalóð Bessahrauni 5.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað deiliskipulags. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1. mars 2013.
Umsóknargjald lóðar kr. 25.000
3. 201110160 - Vesturvegur 13A. Umsókn um lóð.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir sækir um auka frest á úthlutun lóðar.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1. mars 2013.
4. 201208008 - Kirkjuvegur 64. Afsal lóðarhluta.
Jóhannes F Guðmundsson afsalar lóðarhluta sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið og felur skipulags-og byggingarfulltrúa að útbúa nýjan lóðarleigusamning.
5. 201208009 - Kirkjuvegur 66. Umsókn um stækkun lóðar.
Þórður Svansson sækir um stækkun lóðar sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið og felur skipulags-og byggingarfulltrúa að útbúa nýjan lóðarleigusamning.
6. 201206112 - Kirkjuvegur 66. Umsókn um byggingarleyfi.
Þórður Svansson sækir um byggingarleyfi fyrir tvíb.húsi sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda erindið til grenndarkynningar sbr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Að grenndarkynningu lokinni mun erindið verða tekið til afgreiðslu.
Gjald vegna grenndarkynningar er kr. 15.552 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
7. 201208012 - Vesturvegi 10. Umsókn um skilti.
Guðmunda Hjörleifsdóttir f.h. Volare ehf og Guðjón Hjörleifsson f.h. Heimaeyjar ehf sækja um leyfi fyrir auglýsingarskiltum á suðurhlið húsnæðis að Vesturvegi 10 sbr. innsend gögn.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda húsnæðis.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið með vísan í skiltareglugerð Ve.bæjar nr. 1110/2005.
Afgreiðslugjald kr. 12.286 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
8. 201208013 - Básar. Umsókn um skilti.
Einar Björn Árnason f.h. Einsa Kalda Veisluþjónustu ehf. sækir um leyfi fyrir auglýsingarskilti á norðurgafl Bása sbr. innsend gögn.
Fyrir liggur samþykki eigenda húsnæðis.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið með vísan í skiltareglugerð Ve.bæjar nr. 1110/2005.
Afgreiðslugjald kr. 12.286 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
9. 201207072 - Strandvegur 76 - Umsókn um auglýsingaskilti
Indíana Auðunsdóttir f.h. Langvíu ehf. sækir um leyfi fyrir auglýsingarskilt á lóðarvegg N1 Básaskersbryggju og á landgöngubrú við smábátahöfn.
Fyrir liggur samþykki eigenda húsnæðis að Básask.br. 6.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið með vísan í skiltareglugerð Ve.bæjar nr. 1110/2005.
Afgreiðslugjald kr. 12.286 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
10. 201208011 - Vesturvegur 22. Umsókn um byggingarleyfi
Guðný Sigríður Hilmisdóttir sækir um leyfi fyrir breytingum á húsnæði sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 8.8.2012.
11. 201208016 - Hrauntún 41. Umsókn um byggingarleyfi
Ágúst Karlsson sækir um leyfi fyrir að einangra húsið með 2" þéttull og klæða með aluzink sbr. innsend gögn.
Einnig er sótt um leyfi fyrir að stækka innkeyrslu til norðurs.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 9.8.2012.
12. 201208014 - Ægisgata 2. Reyndarteikningar.
Björgvin Björgvinsson f.h. Vestmannaeyjabæjar sendir inn reyndarteikninar af Fiskiðju Ægisgötu 2.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 8.8.2012.
13. 201208017 - Njarðarstígur 17. Reyndarteikningar
Björgvin Björgvinsson f.h. húseigenda sendir inn reyndarteikninar af Njarðarstíg 17.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 8.8.2012.
14. 201206098 - Fiskmarkaður Vestmannaeyja. Umsókn um byggingarleyfi
(5 mál frá 165 fundi)
Páll Zóphóníasson f.h. Fiskmarkaðs Vestmannaeyja hf. sækir um leyfi fyrir stoðveggjum í lóðarmörkum sbr. meðfylgjandi gögn og innsent bréf dags. 9.7.2012.
Fyrir liggur umsögn Framkvæmda- og hafnarráðs dags. 22.6.2012.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið sbr. innsend gögn.
Afgreiðslugjald kr. 12.286 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
15. 201208018 - Hundasvæði. Umferð ökutækja.
Sigrún Jónsdóttir óskar eftir að umferð ökutækja verði bönnuð eða mjög takmörkuð á hundasvæði sunnan Eldfells.
Afgreiðsla:
Ráðið getur ekki orðið við erindinu, en beinir þeim vinsamlegu tilmælum til þeirra sem aka um svæðið að tekið sé tillit til lausagöngu hunda.
Að gefnu tilefni vill umhverfis-og skipulagsráð benda hundaeigendum á, að hundar eru bannaðir á ákveðnum svæðum í Vestmannaeyjum td. í Herjólfsdal, á Heimakletti, Stakkagerðistúni og Skanssvæði.
16. 201208019 - Umhverfisviðurkenningar 2012
Umhverfis-og skipulagsráð Vestmannaeyja veitti umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2012 þann 2. ágúst s.l. Að þessu sinni voru veittar viðurkenningar fyrir snyrtilegustu húseignina, snyrtilegasta fyrirtækið, snyrtilegusta garðinn og endurbætur til fyrirmyndar. Veiting viðurkenninganna var unnin í samvinnu við Rotary- hreyfinguna í Vestmannaeyjum.
Snyrtilegasta fyrirtækið:
Volcano Café
Eigendur eru Guðmundur Þór Sveinsson og Ragnheiður Vala Arnardóttir.
Mjög og smekklegt og alltaf passað upp á að allt sé snyrtilegt.
Bestu endurbæturnar:
Hvítingavegur 10 - Hljómskálinn
Eigendur eru Sigurður Davíðsson og Hjördís H Friðjónsdóttir.
Þau hafa tekið hús, bílskúr og garð í gegn mjög smekklega og snyrtilega svo eftir er tekið.
Snyrtilegasta eignin:
Kirkjubæjarbraut 2
Eigendur eru Sveinbjörn Hjálmarsson og Erna margrét Jóhannesdóttir
Eignin hefur alltaf verið mjög snyrtileg og til fyrirmyndar.
Fegursti garðurinn:
Brekastígur 14
Eigendur eru Sigríður Þórðardóttir og Sigurður Þór Sveinsson
Garðurinn var tekinn í gegn fyrir mörgum árum og verið vel haldið við alla tíð síðan.
Sérstaka viðurkenningur fyrir framlag til umhverfisins í Vestmannaeyjum hlýtur Jóhann Jónsson.
Jói hefur um árabil sýnt eyjunni einstaka umhyggju og lagt sig allan fram um að halda umhverfinu hreinu og fínu. Einnig hefur hann upp á sitt einsdæmi merkt gönguleiðir og lagað stíga. Vestmannaeyjabær og Rotary heiðra hann sérstaklega fyrir sitt einstaka og ómetanlega framlag.
Hann fékk að gjöf glerlistaverk af Vestmannaeyjum eftir Berglindi Kristjánsdóttur.
Ráðið þakkar Rotary fyrir þeirra framlag.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:55



