07.08.2012
Framkvæmda- og hafnarráð - 131
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 131. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
7. ágúst 2012 og hófst hann kl.
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Jón Árni Ólafsson, Bergvin Oddsson, Íris Róbertsdóttir, Guðmundur Þ B Ólafsson, Friðrik Björgvinsson, Ólafur Þór Snorrason.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Dagskrá:
1. 201204075 - Deiliskipulag á hafnarsvæði. Svæði H-2, vesturhluti.
Fyrir lá lýsing á fyrirhuguðu deiliskipulagi hafnarsvæðis (H-2), sem nær yfir Botninn og norður af Friðarhöfn, sem framkvæmda- og hafnarráð fékk til umsagnar.
Ráðið samþykkir lýsinguna fyrir sitt leyti en leggur áherslu á að athafnasvæði við bryggjukanta og annað það sem fylgir hafnarstarfseminni verði ekki skert.
2. 201112078 - Endurbætur á Binnabryggju 2012
Fyrir lágu upplýsingar frá Siglingastofnun þar sem fram kom að lægsta tilboð í stálþil vegna viðgerðar á Binnabryggju hefði hljóðað upp á 66 milljónir króna.
Ráðið samþykkir að fela Siglingastofnun framgang málsins í samráði við framkvæmdastjóra sviðsins.
3. 201108115 - Geymslusvæði fyrir smábáta norðan Strandvegar
Farið yfir stöðu framkvæmda við geymslusvæði smábáta norðan Strandvegar. Fram kom að ætlunin er að opna svæðið í haust.
4. 201203062 - Útboð á sorphirðu, sorpförgun og rekstri söfnunarstöðvar fyrir sorp.
Friðrik Björgvinsson kynnti niðurstöður útboðs á sorphirðu og sorpförgun í Vestmannaeyjum 2012-2015 sem opnuð voru 23.júlí sl. Eftirfarandi tilboð bárust.
Tilboð í sorphirðu:
Kubbur ehf. 20.883.484 kr.
Íslenska Gámafélagið ehf. 25.450.000 kr.
Tilboð í sorpförgun:
Íslenska Gámafélagið ehf. 86.581.800 kr.
Kubbur ehf. 53.383.300 kr.
Kubbur ehf. (frávikstilboð 1) 49.889.300 kr
Kubbur ehf. (frávikstilboð 2) 39.550.000 kr.
Tilboð í sorphirðu og sorpgörgun:
Gámaþjónustan hf. 97.772.129 kr.
Gámaþjónustan hf. (frávikstilboð 1) 94.827.643 kr.
Gámaþjónustan hf. (frávikstilboð 2) 102.967.726 kr.
Ráðið samþykkir að fela starfsmönnum Umhverfis- og framkvæmdasviðs að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Kubb ehf. á grundvelli tilboðs þeirra. Framkvæmda- og hafnarráð þakkar þeim aðilum sem sýndu þessu útboði áhuga.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.30



