31.07.2012
Bæjarráð - 2937
Bæjarráð Vestmannaeyja - 2937. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
31. júlí 2012 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Páley Borgþórsdóttir, Páll Scheving Ingvarsson, Páll Marvin Jónsson, Elliði Vignisson.
Fundargerð ritaði: Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Við umræðu á fyrsta máli á dagskrá, lokun á skurðstofu Heilbrigðistofnunnar Vestmannaeyja mætti Gunnar Gunnarsson framkvæmdastjóri stofnunarinnar. Eftir það vék Gunnar af fundi.
Dagskrá:
|
1.
|
200904045 - Lokun á skurðstofu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja.
|
|
|
Á fundinn kom Gunnar Gunnarsson framkvæmdarstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. Í máli hans kom meðal annars fram að á seinustu fjórum árum nemi niðurskurður á fjárframlögum til reksturs stofnunarinnar um 25% eða um 200 milljónum. Stöðugildum hefur fækkað um 10 og þjónusta dregist saman sem því nemur. Lengra verður vart komist í niðurskurði að mati framkvæmdastjórans
Enn fremur gerði Gunnar grein fyrir því að þrátt fyrir þennan gríðarlega niðurskurð hafi tekist að tryggja fulla mönnun á skurðdeild út árið 2012. Öllum er ljóst að skera þarf niður í rekstri ríkisins en ljóst má vera að ekki verður lengra gengið í niðurskurði á heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum. Bæjarráð skorar enn og aftur á ríkisyfirvöld að standa vörð um þann hornstein velferðar sem felst í heilbrigðisþjónustu. |
||
|
|
||
|
2.
|
201207081 - Gjald vegna nytjaréttar í úteyjum 2012
|
|
|
Bæjarráð samþykkir að fella niður gjald vegna nytjaréttar í úteyjum fyrir árið 2012. Ákvöðun þessi er tekin í ljósi þess að lundaveiði hefur verið bönnuð með öllu í ár og því litlar forsendur fyrir greiðslu fyrir nytjarétt. Til að viðhalda samningum samþykkir bæjarráð að samningsgjald skuli vera 5.000 krónur.
|
||
|
|
||
|
3.
|
201207082 - Hækkun lægstu launa hjá starfsmönnum Vestmannaeyjabæjar.
|
|
|
Í ljósi þess að rekstur Vestmannaeyjabæjar hefur gengið afar vel það sem af er ári bæði vegna aukinna tekna af útsvari sem og þeirra hagræðinga sem gripið hefur verið til í rekstri sveitarfélagsins telur bæjarráð að svigrúm sé til að hækka lægstu laun starfsmanna.
Bæjarráð samþykkir því að lágmarks launaflokkur þeirra starfsmanna Vestmannaeyjabæjar sem fá greitt samkvæmt almennum kjarasamningum STAVEY og Drífanda skuli eigi vera lægri en launaflokkur 120 að afloknum tveimur árum samfellt í starfi hjá Vestmannaeyjabæ. Breytingin mun taka gildi frá og með 1. júlí 2012. Með þessu verður sú breyting gerð að lægstu laun hækka úr launaflokki 115 í 120. |
||
|
|
||
|
4.
|
201207063 - Til umsagnar umsókn Björgunarfélags Vestmannaeyja vegna flugeldasýningar á þjóðhátíðinni 2012
|
|
|
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um flugeldasýningu á Þjóðhátíðinni 2012 svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi skotsvæðisins á kostnað umsjónaraðila ef þörf krefur.
|
||
|
|
||
|
5.
|
201207061 - Til umsagnar umsókn fyrir Hótel Eyjar vegna endurnýjunar rekstrarleyfis
|
|
|
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
|
||
|
|
||
|
6.
|
201207076 - Til umsagnar umsókn fyrir Volcano vegna tímabundins áfengisleyfis 1.-2. ágúst næstkomandi
|
|
|
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um tímabundið áfengisleyfi til kl. 05:00 miðvikudaginn 1. ágúst og fimmtudaginn 2. ágúst í tengslu við þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
|
||
|
|
||
|
7.
|
201207062 - Til umsagnar umsókn Stjörnunnar vegna rekstrarleyfis fyrir veitingastaðinn Subway
|
|
|
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
|
||
|
|
||
|
8.
|
201207095 - Til umasgnar umsókn Jóns Inga Guðjónssonar f.h. Dalhrauns 6 ehf. vegna tímabundins áfengisleyfis 1.-3. ágúst næstkomandi.
|
|
|
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um tímabundið áfengisleyfi til að hafa veitingastaðina Lundann, Prófastinn og Pizza 67 opna til kl. 06:00 aðfaranótt fimmtudagsins 2. ágúst og aðfaranótt föstudagsins 3. ágúst í tengslu við þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
Staðsetningin á garðinum við Pizza 67 fellur innan skilgreinds miðbæjar og samþykkir bæjarráð að garðurinn sé opinn til kl. 24:00 umbeðna daga. Einnig leggur Vestmannaeyjabær ríka áherslu á að fullt tillit sé tekið til íbúa og annarra rekstraraðila í nágrenninu. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:36



