19.07.2012
Bæjarstjórn - 1465
Bæjarstjórn Vestmannaeyja - 1465. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
19. júlí 2012 og hófst hann kl. 18.00
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson, Elliði Vignisson, Páley Borgþórsdóttir, Páll Marvin Jónsson, Páll Scheving Ingvarsson, Guðlaugur Friðþórsson og Jórunn Einarsdóttir.
Fundargerð ritaði: Rut Haraldsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslu-og fjármálasviðs.
Leitað var afbrigða til að taka inn fyrsta mál á dagskrá og var það samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Við umræðu og afgreiðslu á máli nr. 3 og 4 í fundargerð umhverfis og skipulagsráðs nr. 166 frá 18.júlí véku Páll Scheving Ingvarsson og Guðlaugur Friðþórsson af fundi. Í þeirra stað komu Stefán Óskar Jónasson og Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir.
Dagskrá:
|
1.
|
201207067 - Þjónustuhús í Herjólfsdal
|
|
|
Bæjarstjórn Vestmannaeyja fjallaði um þjónustuhús í Herjólfsdal.
|
||
|
Bæjarstórn Vestmannaeyja fagnar þeim myndarskap sem þjóðhátíðarnefnd hefur sýnt í uppsettningu og fyrirkomulagi á þjónustuhúsi og varanlegu sviði í Herjólfsdal. Húsið sem þegar hefur aukið gæði Þjóðhátíðar svo um munar hefur alla burði til að þjónusta samfélagið um ókomna tíð. Salernisaðstaða hefur verið stóraukin og þjónusta í sölubásum sömuleiðis. Mestu skiptir þó að miðlun á hljóð og mynd bæði inn á danspall og upp í brekku er nú á borð við það sem best gerist. Ástæða er til að geta þess sérstaklega að húsið er með öllu kostað af þjóðhátíðarnefnd og rekið á þeirra kostnað.
Frá upphafi hefur verið stefnt að því að ljúka frágangi á húsinu þannig að sómi sé af. Í umfjöllun Vestmannaeyjabæjar hefur ætíð verið gerð skýr og ófrávíkjanleg krafa um að húsið verði klætt með náttúrusteini. Auk þess er fyrirhugað að klæða þak þess með grasi, loka sölubásum með ljósmyndum og upplýsingaskiltum og þar fram eftir götunum. Framkvæmdir sem þessar eru bæði kostnaðar- og tímafrekar. Sérstaklega það sem snýr að klæðningu úr náttúrugrjóti. Á því ríkir fullur skilningur. Nú þegar hafa þó verið sett upp sýnishorn af klæðningu meðal annars í þeim tilgangi að sjá útlit og kanna verðurþol. Auk þess er nú unnið að því að setja gras á þak hússins. Vestmannaeyjabær hefur á seinustu dögum átt í viðræðum við Þjóðhátíðarnefnd sem er eigandi hússins. Þar hefur verið upplýst um fyrirkomulag sem báðum er þóknanlegt og felur það í sér að innan tveggja ára verði húsið að fullufrágengið. Þak klætt með grasi, veggir klæddir náttúrugrjóti auk þess sem upplýsingaskiltum og ljósmyndum verður haganlega fyrir komið. Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir þann tímaramma sem um er rætt. Gunnlaugur Grettisson Páll Marvin Jónsson Páley Borgþórsdóttir Elliði Vignisson Páll Scheving Ingvarsson Guðlaugur Friðþórsson Jórunn Einarsdóttir Var ályktunin samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum. |
||
|
|
||
|
2.
|
201207002F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja nr. 130 frá 9.júlí s.l.
|
|
|
Liðir 1 - 5 liggja fyrir til staðfestingar.
|
||
|
Liðir 1-5 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
3.
|
201207003F - Bæjarráð Vestmannaeyja nr. 2936 frá 17. júlí s.l.
|
|
|
Liðir 1, 2 og 4 liggja fyrir til samþykktar.
Liður 3 til kynningar. |
||
|
Liðir 1, 2 og 4 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
4.
|
201207001F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja nr. 166 frá 18. júlí s.l.
|
|
|
Liður 1- 7 liggja fyrir til umræðu og staðfestingar.
Liðir 8 - 22 liggja fyrir til staðfestingar. |
||
|
Liður 1 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 2 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum. Liður 3 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum. Liður 4 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum. Liður 5 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum. Liður 6 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum. Liður 7 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum. liðir 8-22 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.55



