18.07.2012

Umhverfis- og skipulagsráð - 166

 
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 166. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
18. júlí 2012 og hófst hann kl. 12:00
 
 
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Kristín Jóhannsdóttir vara form., Hörður Óskarsson, Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson og Sigurður Smári Benónýsson.
 
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
 
Kristín Jóhannsdóttir mætti til fundar að lokinni afgr. á mál nr. 2.
Hörður Óskarsson og Pétur Fannar Hreinsson véku af fundi í 3 og 4 máli.
 
 
Dagskrá:
 
1. 201203024 - Deiliskipulag Eldheima, skipulagsbreyting
Fyrir liggur bréf frá Skipulagsstofnun dags. 20.6.2012. og leiðrétt skipulagsgögn Páls Zóphóníassonar, TPZ ehf. f.h. Vestmannaeyjabæjar dags. 4.7.2012. Tillagan sýnir nýja afmörkun deiliskipulag frá auglýstri tillögu, skipulagsmörk minnka og falla að mörkum deiliskipulags austurbæjar frá 1988.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir breytingar á skipulagsmörkum deiliskipulags með ofangreindum breytingum.
 
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
 
 
2. 201207035 - Deiliskipulag austurbæjar - skipulagsbreyting
Lögð fram tillaga Páls Zóphóníassonar, TPZ ehf. f.h. Vestmannaeyjabæjar dags. 5.7.2012. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að byggingarreitir nr. 2-5 við Austurgerði verði feldir út og í stað þeirra kemur bílastæði tengt starfssemi Eldheima.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Ráðið samþykkkir að innsendar athugasemdir frá auglýstri breytingartillögu deiliskipulags Eldheima gilda við afgreiðslu erindis.
 
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
 
 
3. 201106061 - Deiliskipulag Ísfélags Vestmannaeyja við FES Strandvegi. Tillaga.
Fyrir liggur bréf frá Skipulagsstofnun dags. 25.6.2012., Umhverfisskýrsla og breytingartillaga Páls Zóphóníassonar, TPZ ehf. sbr. athugasemdabréf Skipulagsstofnunar.
Afgreiðsla:
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að endurbirta deiliskipulagsuppdrátt ásamt Umhverfisskýrslu.
 
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
 
 
4. 201205042 - Deiliskipulag á hafnarsvæði H-1, vesturhluti.
Lagt fram umsögn Skipulagsstofnunar dags. 21.6.2012. og greinargerð Páls Zóphóníassonar skipulagshönnuðar dags. 11.7.2012.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir með vísan til 37 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að afmörkun skipulagssvæðis skuli standa óbreytt sbr. auglýst lýsing deiliskipulags. Ráðið felur skipulagsfulltrúa að boða hagmunaaðila til samráðsfundar um gerð skipulagstillögunar.
 
 
5. 201207034 - Deiliskipulag Miðbæjar - skipulagsbreyting
Lögð fram tillaga umhverfis-og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar dags. 17.7.2012. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun á byggingarreit hótels Vestmannaeyja. Nýjum bílastæðum og minnkun á byggingareit lóðar Vestmannabraut 29-31.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu.
 
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
 
 
6. 201204075 - Deiliskipulag á hafnarsvæði. Svæði H-2, vesturhluti.
Tekin fyrir Lýsing deiliskipulags á hafnarsvæði H-2, vesturhluti. Lýsing unnin af skipulagsráðgjafa Alta ehf. dags. 18.7.2012. Í lýsingunni koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir Lýsingu deiliskipulags til kynningar og umsagnar með vísan til 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt að vísa lýsingunni til umsagnar Skipulagsstofnunar og annara umsagnaraðila.
 
 
7. 201207057 - Deiliskipulag á iðnaðarsvæði IS-4 á Eiði.
Lögð fram tillaga ALTA ehf, f.h. Vestmannaeyjabæjar dags. 18.7.2012. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir byggingarreit fyrir skolpdælustöð.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir með tilvísan í 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu.
 
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
 
 
8. 201207056 - Heiðarvegur 6. Umsókn um stækkun lóðar og byggingarreits.
Fyrir liggur bréf frá lögmanni lóðarhafa þar sem óskað er eftir stækkun lóðar og stækkun á byggingarreit.
Afgreiðsla:
Ráðið getur ekki orðið við umsókn um lóðarstækkun þar sem lóðarskiki við Vesturveg 38 er hluti af flóttaleið Tónlistarskólans. Ráðið getur ekki heimilað stækkun byggingarreits þar sem deiliskipulag svæðis liggur ekki fyrir. Formanni ráðsins og skipulagsfulltrúa er falið að ræða við bréfritara.
 
 
9. 1207002 - Ofanleiti. Umsókn um frístundalóð
Hörður Már Þorvaldsson sækir um sumarhúsalóð nr. 10 við Ofanleiti.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1. feb. 2013.
Umsóknargjald lóðar kr. 25.000
 
 
10. 201207025 - Ofanleiti. Umsókn um frístundalóð
Tryggvi Þór Hafstein sækir um sumarhúsalóð nr. 11 við Ofanleiti.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1. feb. 2013.
Umsóknargjald lóðar kr. 25.000
 
 
11. 1207001 - Ofanleiti. Umsókn um frístundalóð
Lovísa Gísladóttir sækir um sumarhúsalóð nr. 18 við Ofanleiti.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1. feb. 2013.
Umsóknargjald lóðar kr. 25.000
 
 
12. 201207055 - Vestmannabraut 60A. Umsókn um lóð
Hrefna Friðgeirsdóttir sækir um einbýlishúsalóð nr. 60a við Vestmannabraut.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1. feb. 2013.
Umsóknargjald lóðar kr. 25.000
 
 
13. 201205014 - Hásteinsvöllur - norðurstúka. Umsókn um stöðuleyfi
Fyrir liggur bréf frá Tryggva M. Sæmundssyni f.h. ÍBV íþróttafélags dags. 11.7.2012.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið og heimilar stöðuleyfi til 1.10.2012.
Stöðuleyfisgjald kr. 43.879 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
 
 
14. 201207005 - Umsókn um afnot af Herjólfsdal dagana 2 ágúst til 6 ágúst 2012
Tryggvi M. Sæmundsson f.h. ÍBV íþróttafélags sækir um afnot af Herjólfsdal að Hamarsvegi dagana 2 - 6 ágúst 2012 sbr. innsent bréf.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið. Ennfremur vill ráðið setja sem skilyrði að allt rusl verði hreinsað á svæðinu fyrir 11/8 n.k. og á þetta einnig við um brennustæði og næsta nágrenni við Fjósaklett. Öll færanleg mannvirki skulu fjarlægð fyrir 18/8 n.k.
 
 
15. 201207058 - Smáragata 5 . Umsókn um byggingarleyfi
Jóna Björgvinsdóttir Smáragötu 5 sækir um leyfi fyrir stækkun húsnæðis sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda erindið til grenndarkynningar sbr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Að grenndarkynningu lokinni mun erindið verða tekið til afgreiðslu.
Gjald vegna grenndarkynningar er kr. 15.552 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
 
 
16. 201207042 - Brimhólabraut 26. Afsal lóðarhluta.
Þorsteinn Árnason Brimhólabraut 26 afsalar sér lóðarhluta sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 13.7.2012.
 
 
17. 201207043 - Brimhólabraut 28. Umsókn um stækkun lóðar.
Gunnar K Gunnarsson Brimhólabraut 28 sækir um stækkun lóðar sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 13.7.2012.
 
 
18. 201207006 - Hásteinsvöllur. Umsókn um lagnaleið ljósleiðara.
Valur Smári Heimisson f.h. ÍBV íþróttafélags sækir um leyfi fyrir lagningu ljósleiðara frá Týsheimili að suður-stúku sbr. innsent bréf.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 16.7.2012.
 
 
19. 201206014 - Stöðuleyfi fyrir veitingavagn
(8 mál frá 163 fundi - frestað erindi)
Hallgrímur S Rögnvaldsson og Wenyi Zeng sækja um stöðuleyfi fyrir veitingagám á hafnarsvæði sbr. innsend gögn.
Fyrir liggur bókun framkvæmda-og hafnarráðs frá 9.7.2012.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið og heimilar stöðuleyfi til 12 mánaða. Leyfishafi skal bera allan kostnað við breytingar á lóð og skila athafnasvæði í sama ástandi og tekið er við því að loknum leyfistíma.
Stöðuleyfisgjald kr. 43.879 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
 
 
20. 201207059 - Langalág, umsókn um lóðir fyrir hótel/gistiheimili.
Óðinn Svansson f.h. óstofnaðs hlutafélags óskar eftir lóðum á þjónustu-og verslunarsvæði í Löngulág fyrir rekstur hótel/gistihúsa sbr. innsend gögn dags. 16.7.2012.
Afgreiðsla:
Ráðið getur ekki úthlutað lóðum þar sem deiliskipulag svæðis liggur ekki fyrir. Ráðið felur formanni ráðsins og skipulagsfulltrúa að ræða við bréfritara.
 
 
21. 201207060 - Eldheimar. Umsókn um byggingarleyfi.
Ólafur Þór Snorrason f.h. Vestmannaeyjabæjar sækir um byggingarleyfi fyrir menningarmiðstöð Eldheima sbr. innsend gögn TPZ ehf.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og vísar erindi til umsagnaraðila með vísan til 2.4.1. gr. Byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
 
 
22. 201206114 - Lundaveiði 2012
Tekið fyrir, Lundaveiði og eggjataka í Vestmannaeyjum 2012.
Afgreiðsla:
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkir að heimila ekki lundaveiði í Vestmannaeyjum sumarið 2012. Ákvörðunin er tekin með hliðsjón af mjög bágu ástandi stofnsins og lélegrar viðkomu stofnsins undanfarin ár. Einnig liggur fyrir samhljóðandi ráðgjöf Náttúrustofu Suðurlands um málið. Ráðið áréttar aftur að ákvörðun um lundaveiði í Vestmannaeyjum er á forræði bæjaryfirvalda og mun ákvörðun um veiði eða áframhaldandi lokun verða tekin árlega m.t.t. aðstæðna á hverjum tíma. Lundinn og lundaveiði í Vestmannaeyjum er gríðarlega stór og mikilvægur hluti í menningu Eyjanna og verður hér eftir sem hingað til gengið um fugla og sögu með tilhlíðilegri virðingu.
 
 
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:10
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159