18.07.2012

Fjölskyldu- og tómstundaráð - 113

 
 
 
Fjölskyldu- og tómstundaráð - 113. fundur
 
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
18. júlí 2012 og hófst hann kl. 16:15
 
 
Fundinn sátu:
Páll Marvin Jónsson, Jórunn Einarsdóttir, Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir, Sigurhanna Friðþórsdóttir, Hildur H Zoega Stefánsdóttir, Jón Pétursson, Guðrún Jónsdóttir, Margrét Rós Ingólfsdóttir.
 
Fundargerð ritaði: Margrét Rós Ingólfsdóttir,
 
 
 
Dagskrá:
 
1. 201201034 - Sískráning barnaverndarmála 2012
Sískráning barnaverndartilkynninga júní.
Í júní bárust 8 tilkynningar vegna 6 barna. Þar af voru 1 tilkynning vegna vanrækslu, 1 vegna ofbeldis gegn börnum og 6 vegna áhættuhegðunar barna. Mál allra 6 barnanna voru til frekari meðferðar.
 
 
2. 200704148 - Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
 
 
3. 200704150 - Fundargerð barnaverndar fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð
Undir þessum lið er fjallað um öll erindi sem falla undir barnavernd og eru trúnaðarmál.
Fundargerð barnaverndar er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
 
 
4. 200711112 - Akstursþjónusta
Framhald af 3. máli 109. fundar frá 9. maí 2012.
Á 109. fundi Fjölskyldu- og tómstundaráðs var samþykkt að fela matshópi að gera mat á akstursþjónustu fatlaðs fólks og aldraða og endurskoða um leið alla aksturssamninga.
 
Matshópurinn leggur fram umrætt mat auk tillagna um úrbætur á akstursþjónustunni. Ráðið þakkar umræddum matshópi fyrir góða skýrslu og mun taka frekari afstöðu til málsins í ágúst.
 
 
5. 200711136 - Málefni fatlaðs fólks
Framkvæmdastjóri kynnir nýja reglugerð vegna framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk.
Ný reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlaða fólk á árinu 2012 lögð fram til kynningar. Ráðið þakkar kynninguna.
 
 
6. 201206115 - Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)
Framkvæmdastjóri kynnir umrætt úrræði sem hugsanlegan þjónustuvalkost fyrir fatlað fólk.
 
Framkvæmdastjóri Fjölskyldu- og fræðslusviðs kynnti notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) en í lögum um málefni fatlaðs fólks er fjallað um innleiðingu þessarar tegundar þjónustu. Lögin kveða á um að þróa skuli leiðir til að taka upp NPA með markvissum og árangursríkum hætti. Ráðgert er að NPA verði til framtíðar eitt meginform þjónustu við fatlað fólk. Sveitarfélögum er þó ekki lögskylt að bjóða upp á slíka þjónustu. Þau sveitarfélög sem velja að taka þátt í verkefninu staðfestir ákvörðun sína með því að setja sér reglur um NPA.
 
Fjölskyldu- og tómstundaráð þakkar kynninguna og felur framkvæmdastjóra að kanna kosti og galla umrædds þjónustuforms fyrir fatlað fólk í Eyjum.
 
 
7. 201207036 - Ósk um fund um lög um húsmæðraorlof
Samband ísl. sveitarfélaga boðar til fundar til að ræða lög um orlof húsnæðra. Vísað er til samþykktar bæjarráðs Hafnafjarðar þar sem skorað er á Alþingi og Samband ísl. sveitarfélaga að beita sér fyrir því að lögin verði felld úr gildi.
Fjölskyldu- og tómstundaráð hefur áður fjallað um lög um húsmæðraorlof á fundum sínum í maí og júlí 2010. Í umsögn ráðsins vegna frumvarps til laga um afnám laga um orlof húsmæðra nr. 53/1972, með síðari breytingum var eftirfarandi sett fram;
"Fjölskyldu- og tómstundaráð telur mikilvægt að sveitarfélög fái sem mest svigrúm til að ráðstafa fjármagni sínu. Ekkert er því til fyrirstöðu að orlofsnefndir húsmæðra verði áfram styrktar, kjósi sveitarfélög að gera svo en slíkt á ekki að vera eitt af lögbundnum hlutverkum sveitarfélaga, sérstaklega ekki þegar brýnari verkefni liggja fyrir. Að öðru leyti er vísað í greinargerð með frumvarpinu og tekið undir þau sjónarmið sem þar koma fram."
Áður (22. desember 2006) hafði ráðið leitað til Jafnréttisstofu þar sem óskað var eftir áliti stofunnar á því hvort umrædd lög standist jafnréttislög. Niðurstaða Jafnréttisstofu á því máli var; "Jafnréttisstofa telur líkur vera á því að umrædd lög teldust vera brot á lögum um jafna stöðu kvenna og karla. (svar Jafnréttisstofu dagsett 2. febrúar 2007)" Ráðið telur afstaða Vestmannaeyjabæjar liggi skýrt fyrir og fagnar því að önnur sveitarfélög taki undir hana.
 
 
8. 200903008 - Styrkumsókn vegna íbúðar fyrir MS-sjúklinga utan af landi
MS-félag Íslands sækir um styrk til leigu og reksturs íbúðar, sem útbúin er fyrir fatlaða, og ætluð til skammtíma afnota fyrir MS-sjúklinga, sem þurfa t.d. að leita sér lækninga í Reykjavík.
Fjölskyldu- og tómstundaráð samþykkir styrk að upphæð kr. 30.000,-.
 
 
9. 201207052 - Styrkbeiðni frá forvarnarhópi ÍBV
Styrkbeiðni frá forvarnarhópi ÍBV
Fjölskyldu- og tómstundaráð fagnar framtaki forvarnarhóps ÍBV og samþykkir styrk upp á kr. 150.000,-
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30
 
 
 
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159