17.07.2012
Bæjarráð - 2936
Bæjarráð Vestmannaeyja - 2936. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
17. júlí 2012 og hófst hann kl. 12.00
Fundinn sátu:
Páley Borgþórsdóttir, Páll Scheving Ingvarsson, Páll Marvin Jónsson og Elliði Vignisson.
Fundargerð ritaði: Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá:
|
1.
|
201207027 - Stefna á hendur Vestmannaeyjabæ til riftunar á ráðstöfunum og endurgreiðslu auðgunar.
|
|
|
Bæjarráð hefur móttekið stefnu frá Kaupþing hf á hendur Vestmannaeyjabæ, dags. 27. júní 2012. Í henni er þess annarsvegar krafist að rift verði greiðslu Kaupþings hf. til Vetmannaeyjabæjar frá 8. Sept. 2008, að fjárhæð kr. 1.013.229.250. Hinsvegar er þess krafist að Vestmannaeyjabær greiði Kaupþingi hf. þessa sömu fjárhæð til baka með stoð í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.
Bæjarráð telur stefnuna ekki eiga við rök að styðjast og felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna Vestmannaeyjabæjar í málinu. |
||
|
|
||
|
2.
|
201207040 - Til umsagnar umsókn fyrir hönd Canton ehf. vegna rekstrarleyfis fyrir veitingasölu og greiðasölu
|
|
|
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
|
||
|
|
||
|
3.
|
200707340 - Fundargerðir nefnda lagðar fyrir bæjarráð
|
|
|
Fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs nr. 130 frá 9. júlí s.l.
|
||
|
|
||
|
4.
|
200708078 - Samningamál lögð fyrir bæjarráð
|
|
|
Afgreiðsla samningamáls er færð í sérstaka samningabók
|
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13.25



